Menntaráð tekur mið af tillögum reykvískra ungmenna 28. apríl 2010 14:56 "Markmiðið er að auka áhrif þeirra í ákvörðunum um mikilvæg mál", segir Marta Guðjónsdóttir formaður starfshópsins og fulltrúi í menntaráði.
Á fundi menntaráðs í dag kynntu fulltrúar í Ungmennaráði Breiðholts tillögur um gæði kennslu í grunnskólum og betri menntun í lífsleikni. Æskufólk í Breiðholti vill að kennsla í grunnskólum verði samræmd og námskrár þrengdar með það að sjónarmiði að allir nemendur hafi jafna grunnþekkingu þegar komið er á menntaskólastig. Í tilkynningu segir að þannig standi allir nemendur jafnt að vígi þegar sótt er um inngöngu í framhaldsskóla. Þá telur Ungmennaráðið að bæta megi til muna lífsleiknikennslu í grunnskólum og vill að samin verði námskrá fyrir það fag, s.s. með markmiðum í kynfræðslu og forvarnarstarfi. Tveir fulltrúar úr Reykjavíkurráði ungmenna; Eva Brá Axelsdóttir og Arnór Gunnar Gunnarsson, fylgdu þessum tillögum úr hlaði á fundi menntaráðs í dag. Í bókun af fundi ráðsins segir m.a. :„Í stefnu og starfsáætlun Menntasviðs er lögð áhersla á að skólinn komi eins og kostur er til móts við ólíkar þarfir, áhuga og námstíl nemenda með einstaklingsmiðuðu námi og fjölbreyttum námsleiðum. Framhaldsskólar hafa jafnframt leitast við að koma til móts við nemendur með margvíslegum námstilboðum. Menntaráð hvetur til áframhaldandi samstarfs grunn- og framhaldsskóla um samfellu í námi og farsæl skólaskil". Menntaráð hefur áður fengið kynningu á tillögum Reykjavíkurráðs ungmenna og fylgt þeim eftir í stefnumótun sinni, s.s. um að efla fjármálakennslu í grunnskólum sem lið í lífsleiknikennslu og stærðfræðikennslu. Menntaráð hefur skipað starfshóp til að koma með tillögur að nýjum leiðum í forvarnarfræðslu til að stemma stigu við vímuneyslu og kynþáttafordómum ungs fólks. Hópinn munu skipa tveir fulltrúar úr Reykjavíkurrráði ungmenna, þrír fulltrúar stjórnmálaflokka og fulltrúar skólastjóra og kennara. ,,Athygli vekur aðfulltrúar úr Ungmennaráði Reykjavíkur eiga sinn fulltrúa í þessum starfshópi og er það í fyrsta skipti sem ungmenni eiga fulltrúa í slíkum starfshópi á vegum borgarinnar. Markmiðið er að auka áhrif þeirra í ákvörðunum um mikilvæg mál", segir Marta Guðjónsdóttir formaður starfshópsins og fulltrúi í menntaráði.
Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Fleiri fréttir Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Sjá meira