Calvin Klein vill íslenskan strák í auglýsingaherferð 21. september 2010 06:00 Ingibjörg Finnbogadóttir og Tinna Aðalbjörnsdóttir reka saman Elite-umboðsskrifstofuna á Íslandi. Þær leita að nýrri karlfyrirsætu fyrir Calvin Klein. fréttablaðið/valli „
Við erum að leita að flottum strákum fyrir næstu tískusýningu hönnuðarins Calvins Klein í New York. Sá sem verður valinn kemst á samning hjá okkur og á svo einnig möguleika á því að komast á samning hjá hönnuðinum sjálfum og verða andlit næstu auglýsingaherferðar fyrirtækisins. Þannig að við erum að leita að næstu karlfyrirsætu Calvins Klein,“ segir Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Elite-umboðsskrifstofunnar á Íslandi. Umboðsskrifstofan fékk verkefnið beint í gegnum tengiliði sína í New York og að sögn Ingibjargar er Calvin Klein að leita að nýju skandinavísku andliti fyrir næstu sýningu sína. „Við erum eina Elite-umboðsskrifstofan á Norðurlöndunum sem fengum þetta verkefni þannig að þetta er bæði mjög spennandi verkefni fyrir okkur og mikill heiður, enda erum við nýbúnar að opna skrifstofuna.“ Að sögn Ingibjargar hefur Calvin Klein ekki áður leitað sérstaklega að íslenskum karlfyrirsætum og bætir við að þetta sé einstakt tækifæri fyrir alla þá stráka sem hafa áhuga á tískubransanum og vilja skoða heiminn í leiðinni. Auglýsingar Calvins Klein hafa ávallt vakið mikla athygli og hafa margar þekktar stjörnur setið fyrir í auglýsingaherferðum hönnuðarins, má þar helst nefna leikarann Mark Wahlberg, fótboltakappann Freddie Ljungberg, fyrirsætuna Kate Moss og leikkonuna Evu Mendez. Verið er að leita að strákum á aldrinum 16 til 30 ára og þurfa þeir að vera yfir 180 sentimetrar að hæð. Prufur fara fram á morgun milli klukkan 16.00 og 18.00 við Klapparstíg 25-27. sara@frettabladid.is
Mest lesið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Lífið „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Lífið samstarf Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Lífið Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Lífið Fleiri fréttir Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Sjá meira