Quadruplos: fjórar stjörnur 25. maí 2010 09:46 Plata Quadruplos er samnefnd sveitinni. Hún er átta laga og kemur út í samstarfi Weirdcore og Brak Records.
Töff tryllingurTónlist **** Quadruplos Hljómsveitin Quadruplos er skipuð þeim Magnúsi Birki Skarphéðinssyni og Tómasi Þórarni Magnússyni. Magnús var m.a. í Mr. Silla & Mongoose og hefur búið til tónlist undir nafninu Magnoose, en Tómas hefur notað aukasjálfið Tomio Newmilk.Hljómsveitin varð til fyrir nokkrum árum en lá í dvala þar til í haust að hún var endurvakin fyrir tónleika á Iceland Airwaves. Síðan hafa þeir Magnús og Tómas verið iðnir við kolann. Þeir áttu frábært lag á Weirdcore-safnplötunni sem kom út í desember síðastliðinn og nú hafa þeir sent frá sér sína fyrstu plötu samnefnda sveitinni. Hún er átta laga og kemur út í samstarfi Weirdcore og Brak Records.Tónlist Quadruplos er hörð og kraftmikil teknótónlist. Það má greina áhrif í henni frá listamönnum eins og Aphex Twin eða hinum íslenska Biogen og í raun taka þeir félagar það sem þeim hentar úr danstónlist síðustu ára hvort sem það er teknó, breakbeat eða drum & bass og blanda því við sitt eigið og útkoman er fersk og orkurík. Þeir hafa mjög sterka tilfinningu fyrir framvindu og dýnamík og byggja lögin flott upp með stíganda og sviptingum á milli lágværari og rólegri kafla og háværari og ómstríðari kafla. Flest lögin ná hámarki í brjáluðum tryllingi. Þetta er auðvitað ekta klúbbatónlist, en hún virkar líka vel heima í stofu eða í bílnum. Bara muna að spila hátt!Á heildina litið er þetta frábær plata. Áhugamenn um raftónlist ættu að tékka á henni, en líka allir sem hafa gaman af hávaða og tryllingi. Það er miklu meira rokk í Quadruplos heldur en flestum gítarsveitum í dag.Trausti JúlíussonNiðurstaða: Flottur hljómur, dýnamík og tryllingur einkenna þessa fyrstu plötu Quadruplos.Hér á YouTube má fá smjörþefinn af plötunni.
Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira