Stórleikirnir í brennidepli í þætti Hjörvars og Gumma 5. ágúst 2010 06:00 Fótboltasérfræðingarnir Hjörvar Hafliðason og Guðmundur Benediktsson stjórna nýjum þætti um enska boltann í vetur.fréttablaðið/anton
Fótboltasérfræðingarnir Hjörvar K. Hafliðason og Guðmundur Benediktsson stjórna nýjum sjónvarpsþætti um enska boltann á Stöð 2 Sport 2 í vetur. „Þetta verða ég og Gummi strax eftir stórleikinn á sunnudegi,“ segir fótboltasérfræðingurinn Hjörvar K. Hafliðason. Þeir Guðmundur Benediktsson stjórna nýjum sjónvarpsþætti um enska boltann á Stöð 2 Sport 2 í vetur. DV greindi frá því í gær að Hjörvar væri að skipta um vettvang og nú er komið í ljós að enski boltinn verður viðfangsefni hans. „Við munum ekkert dvelja lengi yfir leikjum eins og West Brom-Blackpool en það verður farið ítarlega í stóru leikina, stóru ákvarðanirnar og vafaatriðin. Við munum reyna að hafa eitthvað skemmtilegt í þessu líka,“ segir Hjörvar og hlakkar til samstarfsins við Gumma Ben. „Guðmundur er afar orðheppinn og fyndinn maður og áhorfendur munu njóta þess líka. En þetta verður fyrst og fremst hrikalega skemmtilegur þáttur sem menn vilja vonandi ekki missa af. Öfugt við þátt Guðna Bergs þá höfum við þáttinn á sunnudögum og segjum alla sögu helgarinnar.“ Góður gestur verður fenginn í hvern þátt og ýmsir áhugaverðir dagskrárliðir verða kynntir til sögunnar. „Það verður ákveðið uppgjör í lok hvers þáttar, valinn besti leikmaðurinn, besti stjórinn og pappakassi umferðarinnar,“ segir Hjörvar. Hann bætir við að rykið verði einnig dustað af gömlum hetjum úr enska boltanum á borð við Bruce Grobbelaar, Matthew Le Tissier, Vinnie Jones, Faustino Asprilla og Eric Cantona. Hjörvar hefur verið fótboltasérfræðingur í Sjónvarpinu í sumar. Hann hefur fjallað um íslenska boltann ásamt Hirti Hjartarsyni og var hluti af sérfræðingunum sem slógu í gegn í HM-þættinum undir stjórn Þorsteins J. „Maður hefur lært fullt af flottum hlutum á RÚV. Það er búið að vera gaman að vinna þar, sérstaklega með Hirti Hjartarsyni. Hann hefur sett umfjöllun um vinsælustu íþrótt á Íslandi á allt annað plan á RÚV.“ Ekki er komið á hreint hvort Hjörvar heldur áfram umfjöllun sinni um íslenska boltann í Sjónvarpinu eftir að enski boltinn byrjar 14. ágúst. Fari svo kemur upp sú staða að hann verður sérfræðingur samtímis á Stöð 2 Sport 2 og í Sjónvarpinu í rúman mánuð, eða þangað til íslenska boltanum lýkur. Fulltrúi íþróttadeildar Sjónvarpsins vildi ekkert tjá sig um framtíð Hjörvars á stöðinni þegar Fréttablaðið leitaði eftir því. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lífið „Agaleysið er algjört“ Lífið Þessi sigruðu Met Gala Tíska og hönnun Gráhærð og aldrei glæsilegri Lífið Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Lífið Skráðu dótturina á spjöld sögunnar Lífið Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Menning Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Lífið „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ Lífið Lively og Baldoni náðu sáttum Lífið Fleiri fréttir Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn Innipúkar geti farið á „tryllt djamm“ í Austurbæjarbíói í annað sinn Oddvitaáskorunin: Hefði viljað verja meiri tíma í tónlistina Blómstrar á Ítalíu og venst skömmum innfæddra Skráðu dótturina á spjöld sögunnar Gráhærð og aldrei glæsilegri Oddvitaáskorunin: Nína ekki eins miðaldra Mætti með sextán ára gamalt prump bróður síns „Agaleysið er algjört“ Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Oddvitaáskorunin: Mistök að kenna hundinum á klukku „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lively og Baldoni náðu sáttum Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Sjá meira