Búast við 120 skemmtiferðaskipum í sumar 26. maí 2010 16:10 Seven Seas Voyager við höfnina.
Það eru ekki allir ferðamenn sem koma fljúgandi til landsins í sumar. Tugþúsundir koma siglandi með skemmtiferðarskipum sem hafa viðkomu víða um land. Fröken Reykjavík var á spariskónum þegar hún bauð ferðamönnum af fyrstu skemmtiferðarskipunum á vegum TVG Zimsen-Eimskip Cruise Agency upp í dans í blíðskaparveðri en þau komu til hafnar í gær. Ferðamennirir á NG Explorer og Seven Seas Voyager gripu líka tækifærið og sveifluðu sér úr skipunum í miðbæinn þar sem þeir spókuðu sig í góða veðrinu, kíktu í búðir og nutu mannlífsins. Reykvíkingar og aðrir landsmenn eiga eftir að sjá mikið af erlendum ferðamönnum í sumar því þau verða mörg skemmtiferðaskipin sem eiga eftir að festa hér landfestar. ,,Við erum með bókaðar um 120 viðkomur skemmtiferðaskipa til Íslands en þar af koma 40 til Reykjavíkur," segir Björn Einarson framkvæmdastjóri TVG-Zimsen. ,Fyrirtækið veitir skemmtiferðaskipum þjónustu í öllum höfnum landsins en við erum með samhæfða og öfluga stjórnstöð í Reykjavík. TVG-Zimsen - Eimskip Cruise Agency aðstoðar við áhafnarskipti, útvegun vista, varahluta og læknisþjónustu. Þá fara öll samskipti skips við höfn, toll og útlendingaeftirlit í gegnum umboðsþjónustuna, auk þess sem við sjáum um að að panta flug, gistingu og ferðir til og frá skipum." Um 72 þúsund farþegar komu til landsins sjóleiðina á síðasta ári. ,,Það var 16% aukning frá árinu 2008 en það lítur út fyrir frekari fjölgun í ár. Ferðamennirnir skapa bæði atvinnu og koma með gjaldeyri inn í landið svo þettar er jákvæð þróun," segir Björn.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Fleiri fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira