Kemur fram í Noregi ásamt Belle & Sebastian og Mew 26. maí 2010 08:00 Ultra Mega Technobandið Stefán kemur fram á tónlistarhátíð í Noregi í sumar. Hér er Siggi söngvari á síðustu Airwaves-hátíð.mynd/hörður sveinsson „
Við hlökkum mikið til. Þetta er í fyrsta skipti sem við gerum eitthvað erlendis í marga mánuði,“ segir Sigurður Ásgeir Árnason Olsen, söngvari hljómsveitarinnar Ultra Mega Technobandið Stefán (UMTBS). UMTBS kemur fram á tónlistarhátíðinni Slottsfjell í Noregi um miðjan júlí ásamt hljómsveitunum Belle & Sebastian og Mew. Bandarísku söngkonurnar Kelis og Juliette Lewis koma einnig fram á hátíðinni sem fer að hluta til fram í glæsilegustu tónleikahöll Noregs í bænum Tönsberg, sem svo skemmtilega vill til að er vinabær Ísafjarðar. „Þetta er mjög undarleg blanda og verður algjör snilld,“ segir Sigurður um þessa sérstöku blöndu listamanna sem koma fram á hátíðinni. UMTBS er ein magnaðasta tónleikasveit landsins og leikur ærslafulla blöndu af teknótónlist og rokki. Belle & Sebastian leikur hins vegar poppaða indítónlist. „Mér finnst Belle & Sebastian alveg frábært band,“ segir Sigurður. „Þeir eru að gera svipaða hluti og við – eru með svona yfirborð. Ég og vinur minn höldum því fram að Belle & Sebastian séu eins og Múmínálfarnir. Fara í dvala á veturna og vakna á sumrin og byrja að spila tónlist. Maður heyrir bara í þeim á sumrin. En þeir eru rosalega satírískir í því. Eru með yfirborðskennd og melódísk lög, en svo eru textarnir um dauðann og hatur.“ Lítið hefur farið fyrir Ultra Mega Technobandinu Stefáni undanfarið, en hljómsveitin kom síðast fram í afmælisveislu Egils Gillzeneggers. Það var að sögn Sigurðar sérstök upplifun, enda hefðbundni áhorfendahópur hljómsveitarinnar víðsfjarri í veislunni. Hljómsveitin hyggst vera virkari á næstunni og horfir til meginlands Evrópu í þeim efnum. „Við erum að leita meira til Evrópu vegna þess að maður yrði hálf þunglyndur ef maður væri alltaf að spila hérna heima. Þetta er svo lítill markaður,“ segir hann. Sigurður lauk nýlega fyrsta árinu í heimspeki í Háskóla Íslands og hefur verið upptekinn við ýmislegt sem hefur haldið honum frá hljómsveitarlífinu. „Ég hef ekki haft vettvang til að vera ber að ofan eins og hálfviti,“ útskýrir Sigurður, sem er yfirleitt ekki lengi að rífa sig úr að ofan á tónleikum. „En nú er komið sumar og maður getur dustað rykið af þessu.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Tónlist Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Lífið Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Lífið Girnileg pizzaloka sem þú verður að prófa! Lífið samstarf „Töluvert álag á líkama sem nálgast sextugt“ Lífið samstarf Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Lífið Fleiri fréttir Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Sjá meira