Sigurmynd Cannes fær misjafna dóma 26. maí 2010 09:30 Apichatpong Weerasethakul með Gullpálmann sem hann fékk um síðustu helgi.
Evrópskir kvikmyndaspekúlantar eru ekki allir jafn sáttir við óvænta sigurmynd Cannes-hátíðarinnar í ár, hina taílensku Uncle Boonmee Who Can Recall His Past Lives í leikstjórn Apichatpong Weerasethakul. Franska dagblaðið Le Monde sagði að dómnefndin hefði ákveðið að verðlauna utangarðsmann í kvikmyndaheiminum og að myndirnar sem kepptu um Gullpálmann hefðu verið frekar lélegar. Blaðið Le Figaro tók enn dýpra í árinni og sagði að sigurmyndin hefði verið bæði leiðinleg og óskiljanleg. Hið spænska El Pais var á sama máli og sagði söguþráðinn algjörlega út í hött. Bresk blöð voru heldur jákvæðari í garð myndarinnar en voru svekkt yfir því að gengið hafi verið framhjá nýjustu mynd Mike Leigh, Another Year. The Times sagði taílensku myndina þá undarlegustu sem hafi keppt um Gullpálmann. Eigi að síður hafi hún verið frábær upplifun þar sem fallegu landslagi og minningarbrotum hafi verið blandað saman á smekklegan hátt. Svissneska blaðið Le Temps sagði að Cannes-hátíðin væri ein örfárra í heiminum þar sem kvikmyndagerðarmenn sem eru skildir út undan vegna markaðsaflanna gætu látið ljós sitt skína. Hér má sjá nokkrar klippur úr sigurmyndinni.
Tengdar fréttir Óvæntustu úrslit Cannes í manna minnum Valið á sigurmynd kvikmyndahátíðarinnar í Cannes kom öllum í opna skjöldu þetta árið. Tim Burton stýrði dómnefndinni sem veitti tælenskri mynd Gullpálmann. 24. maí 2010 13:25 Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira
Óvæntustu úrslit Cannes í manna minnum Valið á sigurmynd kvikmyndahátíðarinnar í Cannes kom öllum í opna skjöldu þetta árið. Tim Burton stýrði dómnefndinni sem veitti tælenskri mynd Gullpálmann. 24. maí 2010 13:25