Krúttlegur hryllingur 13. júní 2010 17:00 Patricia segir heklað blóð oft fá fólk til að hlæja, jafnvel þótt senan sé skelfileg.
Listakonan Patricia Waller er væntanleg hingað til lands en hún tekur þátt í prjónalistahátíðinni Lykkjur: Norræn prjónalist dagana 17. júní til 4. júlí. Um er að ræða alþjóðlega sýningu á listaverkum þar sem nær eingöngu er notast við hekl- og prjónatækni. Heklverk Patriciu eru einstök blanda af krúttskap og hryllingi sem vekur mismunandi viðbrögð hjá fólki að hennar eigin sögn. „Hekl hefur þetta sakleysislega yfirbragð og ull kallar fram hlýjar tilfinningar hjá fólki. Heklað blóð fær fólk oft til að fara að hlæja, jafnvel þó það sé að horfa á einhverja skelfilega senu," segir Patricia.Patricia prjónaði Svínku á þennan hryllingslega hátt.Hún hefur unnið listaverk úr ull frá því hún lauk námi í höggmyndalist snemma á tíunda áratugnum. „Mig langaði þá að vinna með efnivið sem væri enn ekki búinn að ná fótfestu í listum. Svo ég fór að hekla mín verk úr ull. Kollegar mínir gerðu mikið grín að mér fyrir að vinna með svo gamaldags efnivið. Og það var í raun erfitt, sem kona, að vinna með efni sem var svo rækilega tengt við húsfreyjulist." En Patricia gafst ekki upp á ullinni og var fljótlega komin með algjörlega sérstöðu. Sýning hennar á Íslandi verður unnin í samstarfi við átta íslenska listamenn, þau Melkorku Huldudóttur, Kristínu Evu Rögnvaldsdóttur, Charlie Strand, Juliu Staples, Vigdísi Þormóðsdóttur, Hildi Hermanns, Jóa Kjartans og Magnús Helgason.Hvert þeirra hefur fengið stórt heklað skordýr frá Patriciu til að skapa sögu í kringum og taka ljósmyndir af í náttúrulegum híbýlum þeirra. Dýrunum verður svo stillt upp á sýningu, eins og á náttúrugripasafni, ásamt ljósmyndum og sögum.- hhs
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sjá meira