Skorið úr um rækjukvóta í næsta mánuði Óli Kristján Ármannsson skrifar 20. júlí 2010 06:00 Jón Bjarnason Fulltrúar Landssambands íslenskra útvegsmanna gengu á fund ráðherra í sjávarútvegsráðuneytinu í gær og fóru fram á að hann endurskoðaði ákvörðun sína um að gefa frjálsar veiðar á úthafsrækju. Fréttablaðið/Anton
Sjávarútvegsráðherra upplýsir í næsta mánuði hvort ákvörðun hans um að gefa veiðar á úthafsrækju frjálsar á veiðiárinu 2010/2011 standi. Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, fundaði í gær um málið með fulltrúum Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ). Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að farið hafi verið yfir stöðu málsins á fundinum og ráðherra kynnt afstaða og röksemdir LÍÚ. Sambandið telur ákvörðun um að gefa veiðarnar frjálsar ólögmæta. „Við fórum þess á leit við ráðherrann að hann endurskoði þessa ákvörðun sína, en það verður svo bara að koma í ljós,“ segir hann. Þá segir Friðrik ákvörðun ráðherra um að gefa veiðarnar frjálsar að stórum hluta byggða á misskilningi. „Við fórum yfir af hverju aflamarkið hefur ekki veiðst, en fyrst og fremst hefur það verið vegna þess að það hefur ekki verið arðbært. En það hefur skánað og nú er þetta að veiðast. Þannig að í ljósi þessa erum við bara bjartsýnir á að ráðherrann breyti þessari afstöðu sinni.“ Friðrik hefur eftir ráðherra að farið verði yfir málið í ágúst. Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður, sem fjallar um málið á vef sínum, furðar sig hins vegar á að veiðarnar skuli ekki hafa verið gefnar frjálsar fyrr. Hann segir að samkvæmt lögum beri ráðherra að gefa veiðar frjálsar séu útgefnar veiðiheimildir ekki nýttar. Hann segir fyrrverandi ráðherra hafa virt lögin að vettugi og sýnt einbeittan brotavilja enda hafi legið fyrir í mörg ár að úthafsrækjustofninn hafi verið vannýttur.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Fleiri fréttir Trúir ekki að Gísli Marteinn eigi við hann Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn Sjá meira