Sif Ágústs og Matta sitja fyrir hjá Moschino og Diesel 9. apríl 2010 04:00 Andrea Brabin, eigandi Eskimo, segist hreykin af góðum árangri íslenskra fyrirsætna undanfarið. Að neðan eru myndir af Sif Ágústsdóttur sem setið hefur fyrir hjá Moschino og á forsíðu Elle.
Íslenskar fyrirsætur hafa verið að gera það gott úti í hinum stóra tískuheimi undanfarið og má þar nefna stúlkur á borð við Sif Ágústsdóttur sem sat fyrir í nýrri auglýsingaherferð tískuhússins Moschino auk Brynju Jónbjarnardóttur sem skrifaði nýverið undir samning við Next Model Agency, eina áhrifamestu umboðsskrifstofu heims. Andrea Brabin, einn eigandi Eskimo Models, segir þetta virkilega góðan árangur hjá stúlkunum. „Sif og Matta, sem situr fyrir í nýrri Diesel herferð, sigruðu báðar í Ford-fyrirsætukeppninni á sínum tíma en Brynja er tiltölulega nýbyrjuð. Þetta er virkilega góður árangur hjá þessum stúlkum því þetta er harður bransi og oft fleiri hundruð stúlkur sem fara í prufu fyrir sama verkefnið. En þetta er þannig að eftir því sem þú vinnur meira, fyrir bæði tískublöð og fatahönnuði, þá skapar maður sér ákveðinn sess og það getur gerst mjög hratt oft á tíðum.“ Andrea segir íslensku stúlkurnar hafa bein í nefinu og sterkan persónuleika sem hún segir skipta engu minna máli en útlitið sjálft. Aðspurð segir hún sjaldgæft að stúlkur komist á svokallaðan heimssamning hjá Next-skrifstofunni líkt og Brynja, en það þýðir að hver einasti bókari á vegum skrifstofunnar þarf að samþykkja hana. „Þeir urðu mjög hrifnir af Brynju og útsendari á vegum skrifstofunnar mun fljúga hingað til lands sérstaklega til að hitta Brynju og ræða við hana sem sýnir greinilega mikinn áhuga af þeirra hálfu. Þeir telja að hún geti náð mjög langt og að hún hafi þennan „X-faktor“.“ Sif hefur starfað sem fyrirsæta í sex ár, eða frá fjórtán ára aldri, og segir hún starfið hafa sína kosti og galla líkt og allt annað. Aðspurð segir hún það hafa verið einstakt að sitja fyrir í auglýsingaherferð Moschino því þar hafi hún fengið að vinna samhliða fagmönnum. „Þetta er stórt ítalskt tískuhús og allir sem komu að þessu voru þeir bestu í sínu fagi. Það hjálpar óneitanlega einnig ferli mínum að fá þessar myndir í möppuna mína því það hækkar mig upp á „virðingarskalanum“,“ útskýrir Sif, en hún hóf feril sinn hjá Eskimo og segist eiga fyrirtækinu margt að þakka. „Fyrirsætustarfið getur verið mjög skemmtilegt, en ég er sammála Andreu, maður verður að læra að bjargað sér til að ná langt í þessum bransa,“ segir hún. sara@frettabladid.is Með bein í nefinu Sif Ágústsdóttir hefur meðal annars setið fyrir á forsíðu Elle og í nýrri auglýsingaherferð Moschino.
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira