Valli Sport hættur sem umboðsmaður Haffa Haff 13. júlí 2010 09:00 Leiðir Haffa Haff og Valla Sport skilja nú eftir tveggja og hálfs árs samstarf. Haffi ætlar ekki að ráða nýjan umboðsmann. fréttablaðið/vilhelm „
Þetta er mjög persónulegt mál fyrir mig því mér þykir mjög vænt um Valla. Við störfum enn saman en við höfðum bara mismunandi hugmyndir um framtíðina," segir tónlistarmaðurinn Haffi Haff. Valli Sport er hættur sem umboðsmaður Haffa eftir tveggja og hálfs árs samstarf. Engin leiðindi voru að baki þessum tímamótum heldur hafði Valli einfaldlega ekki tíma lengur til að sinna ört vaxandi ferli Haffa. „Hann hefur fullt af öðrum verkefnum og ég er líka að stefna á nýja hluti," segir Haffi. „Fólk áttar sig kannski ekki á því en ég kann sitthvað fyrir mér í viðskiptum og mér finnst mikilvægt núna að taka ábyrgð á sjálfum mér. Ég vil ekki vera byrði á fólki og halda neinum niðri. Ég vil taka ábyrgð og gera hlutina á eigin forsendum. Mig langar að skapa minn eigin heim." Haffi hefur keypt fyrsta upplagið af nýjustu plötu sinni Freak af útgáfufyrirtækinu Hands Up Music, sem Valli er hluthafi í, auk útgáfuréttarins. Hann ætlar að gefa plötuna út sjálfur og býst ekki við því að fá sér annan umboðsmann í bráð. „Ég hef sannað fyrir sjálfum mér að ég get ráðið við ýmsa hluti. Það er líka meira gefandi að vita að þú hefur gert eitthvað nýtt, sem þú hefðir fyrirfram haldið að þú gætir ekki." Fyrstu tónleikar Haffa án aðstoðar Valla verða með Páli Óskari á Nasa á miðnætti á laugardagskvöld þar sem öllu verður tjaldað til. Valla þykir leitt að samstarfið sé á enda runnið. „Það er búið að vera mjög gaman að vinna með honum en einhvern tímann verður allt að taka endi. Hann er farinn að þurfa það mikinn tíma og ég er ekki í aðstöðu til að veita hann," segir Valli um Haffa. Valli Sport er einn af atkvæðamestu umboðsmönnum landsins, enda er hann með á sinni könnu Eurovision-stjörnuna Heru Björk, hljómsveitina Elektru og þau Írisi Hólm og Brynjar Már. Hann vakti síðast athygli fyrir vasklega framgöngu í Eurovision-keppninni þegar lét þekkta erlenda fjölmiðla bíða í röðum eftir því að ná tali af Heru Björk, sem hafði að vonum í heilmiklu að snúast við undirbúninginn. „Aðalvinnan mín er að reka auglýsingastofu og eins og þetta var orðið þá var þetta of mikið svo ég gæti sinnt því almennilega. Hann er líka mjög sjálfstæður karakter sem er búinn að breytast og þroskast mikið síðan ég byrjaði að vinna með honum. Hann er farinn að geta séð um fullt af hlutum sem ég sá um þegar ég byrjaði að vinna með honum. Þannig að þetta hentar báðum aðilum mjög vel."
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira