Lögregla hafði hendur í hári Skap-Ofsa 25. mars 2010 04:45 Hús Hannesar Smárasonar þrifið og málað eftir að rauðri málningu hafði verið slett á það.
Málningarslettumaðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í janúar er hinn sami og gengið hefur undir dulnefninu Skap-Ofsi, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Málningarslettunum linnti eftir handtöku mannsins. Rannsókn lögreglu á tölvubúnaði mannsins, tölvum, myndavélum og minniskubbum hefur leitt í ljós að þaðan var meðal annars sent myndband á vefinn YouTube, þar sem sýnd voru hús auðmanna eftir að skvett hafði verið á þau rauðri málningu. Tónlistin sem maðurinn valdi við myndbandið er lag eftir Johann Sebastian Bach, Slá þú hjartans hörpustrengi, sem oft er leikið við jarðarfarir. Maðurinn sem um ræðir var handtekinn í kjölfar þess að rauðri málningu hafði verið slett á hús í eigu fyrrverandi bankastjóra Kaupþings, Hreiðars Más Sigurðssonar. Það var síðari hluta janúarmánaðar. Þá hafði rauðri málningu verið slett á hús Bjarna Ármannssonar, Birnu Einarsdóttur, Hannesar Smárasonar, Björgólfs Guðmundssonar og húseignir Karls og Steingríms Wernerssona. Loks var heimili Lárusar Welding atað málningu í miðjum gleðskap á föstudagskvöldi. Maðurinn var í haldi lögreglu nóttina eftir að hann var handtekinn. Auk tölvubúnaðarins fannst á heimili hans eitthvað af málningu. Hann var yfirheyrður daginn eftir og sleppt að því loknu. Nýverið var hann svo aftur kallaður til yfirheyrslu, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Maðurinn er á fimmtugsaldri og hefur komið við sögu lögreglu áður. jss@frettabladid.is HUmmer Jeppi Björgólfs Thors Björgólfssonar var málaður rauður. Steingrímur Wernersson Hús hans fór ekki varhluta af málningarslettunum. Hús Karls Wernerssonar Ekki var einungis slett á hús hans, heldur voru tröppurnar málaðar rauðar. Valhöll Anddyri byggingar Sjálfstæðisflokksins var málað rautt.
Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Innlent Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Erlent Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Innlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Innlent Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent Fleiri fréttir Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap Sjá meira