Lífið

Beint á Íslandstúr í kjölfar tónleika með Bombay Bicycle Club í London

Mukkaló er nýkomin frá Bretlandi og er þegar farin í tónleikaferð um landið. fréttablaðið/daníel
Mukkaló er nýkomin frá Bretlandi og er þegar farin í tónleikaferð um landið. fréttablaðið/daníel
Hljómsveitin Mukkaló var stofnuð fyrir rúmu ári en hefur náð að afreka ýmislegt. Hljómsveitin er nýkomin heim frá Bretlandi þar sem hún kom fram með spútniksveitinni Bombay Bicycle Club.

„Þeir voru aldrei með neina stjörnustæla og eru mjög hógværir,“ segir Þorbjörg Ósk Eggertsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar Mukkaló.

Hljómsveitin Bombay Bicycle Club, sem kom fram á Iceland Airwaves hátíðinni í október, bauð Mukkaló að spila með sér á tvennum tónleikum í Queen Elizabeth Hall í Lundúnum á dögunum. Hljómsveitirnar kynntust í október þegar strákarnir í Bombay Bicycle Club mættu óvænt á tónleika Mukkaló í Reykjavík.

„Við keyptum flugmiðana, en þeir borguðu okkur smá pening fyrir tónleikana,“ segir Þorbjörg. „Við gerðum litla EP-plötu áður en við fórum út og gátum selt úti. Við seldum tæplega 200 diska. Þeir voru hissa á hvað við náðum að selja mikið.“

Bombay Bicycle Club nýtur vaxandi vinsælda í Evrópu, en önnur breiðskífa hljómsveitarinnar náði áttunda sæti breska vinsældalistans á árinu. Þorbjörg segir vinsældirnar ekki hafa stigið strákunum í hljómsveitinni til höfuðs, en tveir af þeim leyfðu henni og fiðluleikara Mukkaló að gista á dýnum á gólfi íbúðar sem þeir leigja í Lundúnum. Þá segir hún fólkinu í kringum bresku hljómsveitina hafa litist vel á Mukkaló. „Umboðsmaður Bombay var mjög spenntur fyrir að vinna meira með okkur,“ segir hún. „Hann vildi hjálpa okkur að halda fleiri tónleika í Englandi og svona. Þeir töluðu líka um hvað þeim fannst gaman á Íslandi, þeir elskuðu landið og langar pottþétt að koma aftur.“

Mukkaló hélt í tónleikaferð um landið í gær ásamt Júníusi Meyvant. Ferðalagið er sérstakt að því leyti að kirkjur landsins verða nýttar sem tónleikasalir. Tónleikaferðin hófst í Sauðárkrókskirkju og í kvöld koma þau fram í Siglufjarðarkirkju. Á næstu dögum koma þau svo við í Húsavíkurkirkju, Bláu kirkjunni á Seyðisfirði, Víkur­kirkju og loks í Stóra-Núpskirkju í Gnúpverjahreppi.

atlifannar@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.