Lífið

Sundhöll minninganna

Steindór og Héðinn framleiða myndina ásamt Brynhildi Birgisdóttur. Héðinn heillaðist af tímaleysi Sundhallarinnar, allir morgnar eru eins og sumar fastagestanna hafa sótt Sundhöllina frá því að hún var opnuð.    Fréttablaðið/Stefán
Steindór og Héðinn framleiða myndina ásamt Brynhildi Birgisdóttur. Héðinn heillaðist af tímaleysi Sundhallarinnar, allir morgnar eru eins og sumar fastagestanna hafa sótt Sundhöllina frá því að hún var opnuð. Fréttablaðið/Stefán

Tíminn er eins og vatnið, orti Steinn Steinarr. Það á óvíða betur við en í Sundhöll Reykjavíkur, þar sem sömu fastagestir hafa vanið komur sínar svo áratugum skiptir. Um þá fjallar heimildarmyndin Höllin, sem verður frumsýnd í Sundhöllinni á laugardag.

Framleiðendur myndarinnar eru Steindór Gunnar Steindórsson, Brynhildur Birgisdóttir og Héðinn Halldórsson, sem að auki leikstýrir og skrifar handritið að myndinni. Þeir byrjuðu á myndinni í janúar 2009, báðir nýkomnir að erlendis frá.

„Steindór var að koma frá Mósambík og ég frá Danmörku," segir Héðinn. „Og við vorum að leita að einhverju skemmtilegu verkefni. Þetta var hugmynd sem hafði lengi blundað í mér, ég er sjálfur fastagestur í Sundhöllinni og bý á næsta götuhorni. Við byrjuðum á því að athuga hvort það væri mögulegt að fá styrki til að hrinda þessu í framkvæmd; það reyndist vera og eftir það fór boltinn að rúlla."

Í myndinni er fylgst með daglegu lífi gesta og starfsfólki Sundhallarinnar á tveimur köldum vetrardögum og tveimur björtum sumardögum. Héðinn eyddi miklum tíma í undirbúningsvinnu en myndin var tekin í tveimur lotum á um það bil tíu dögum. Á þeim tíma tóku þeir Steindór um 25 klukkustundir af efni, sem þeir grisjuðu niður í um 52 mínútna heimildarmynd.

Héðinn segir gesti og starfsfólk greinilega bera mikla virðingu fyrir húsinu og það sé mikil samkennd innan hópsins. Sjálfur hafi hann fyrst og fremst heillast af tímaleysi Sundhallarinnar.

„Allir morgnar eru eins; þetta er sama fólkið sem mætir og allir eiga sín sæti. Þetta er eins og hálfgert ritúal. Það eina sem breytist er að fólk fellur frá og hópurinn minnkar. Þetta voru því eiginlega síðustu forvöð til að fanga þessa stemningu, meðan fastagestirnir sem hafa stundað sundlaugina allt frá því hún opnaði á fjórða áratugnum, eru enn á lífi."

Höllin verður frumsýnd í Sundhöllinni á laugardagskvöld klukkan 20 og gefst kostur á að vera ofan í lauginni meðan á sýningu stendur.

Sýningartími myndarinnar er 52 mínútur. Myndin verður jafnframt sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Riff, sem hefst 23. september. bergsteinn@frettabladid.is

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.