Gillz er fórnarlamb eigin velgengni 22. september 2010 06:00 Gillz með umsóknina í Rithöfundasambandið. Þar fær hann enga flýtimeðferð. „
Ég skellti mér til Manchester til að horfa á United rúlla yfir Liverpool og á meðan verður allt vitlaust á klakanum," segir Egill „Gillzenegger" Einarsson rithöfundur. Eftir að Fréttablaðið sagði frá því að Egill hefði sótt um inngöngu í Rithöfundasamband Íslands hefur komið upp nokkur kurr meðal rithöfunda. Ekki má ólíklegt telja að yfirlýsingar hans um að seilast til áhrifa innan sambandsins ráði þar nokkru um. Smásagnahöfundurinn og bloggarinn Ágúst Borgþór Sverrisson, oft nefndur Bloggþór, ritaði á DV.is að hann hefði ekkert á móti inngöngu Gillzeneggers í Rithöfundasambandið, en hann taldi Gillz og Fréttablaðið sýna rithöfundum landsins virðingarleysi, yfirgang og hroka með umræddri frétt. Til að mynda virtust áform Gillzeneggers um að „kjöta" rithöfundinn Sjón upp ekki falla í kramið hjá Ágústi Borgþóri. „Þetta er bara gjald velgengninnar. Maður fær á sig hælbíta og hýenur," segir Egill þegar hann er spurður út í skrif Ágústs. „Ég hef annars verið að reyna að komast að því hver þessi maður er. Ég fæ ekki betur séð en að þetta sé sami rasshausinn og hótaði því fyrir nokkrum árum að hætta að blogga ef hann seldi ekki 300 eintök af bók sinni. 300 eintök! Nú, hann skeit upp á bak og seldi 150 eintök. Ef þetta er sami maðurinn, þá skil ég ekki af hverju hann er enn að skrifa. En hitt er öruggt, að ef Ágúst Borgþór er í Rithöfundasambandinu þá er augljóslega þörf á að ég mæti og taki þar til hendinni." Að sögn Ragnheiðar Tryggvadóttur, framkvæmdastjóra Rithöfundasambandsins, hefur umsókn Egils ekki enn verið tekin fyrir hjá inntökunefndinni. Það verði að líkindum ekki fyrr en í enda október. „Hann verður bara að bíða rólegur, hann fær enga flýtimeðferð," segir hún.- hdm
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira