Laminn á karókíbar í Glasgow vegna naglalakks 2. júní 2010 06:00 Eins og sjá má er Alasdair búinn að jafna sig eftir árásina. Tónleikar hans og Benna verða á fimmtudaginn. Fréttablaðið/Pjetur
Auglýsingaplakat með Benna Hemm Hemm og Skotanum Alasdair Roberts vegna tónleika þeirra á Listahátíð í Reykjavík hefur vakið athygli í strætóskýlum borgarinnar. Myndin á plakatinu var tekin í Glasgow og þar skartar Alasdair myndarlegu glóðarauga. „Rétt áður en við fórum í að taka þessa mynd var ráðist á Alasdair á karókíbar af því að hann var með naglalakk á puttunum," segir Benni en bætir við að hann hafi ekki meiðst alvarlega í árásinni. „Hann gerði einhverjar tilraunir með naglalakk og það var aðeins tekið í hann. Við erum eins og einhverjir Glasgow-mafíósar á þessari mynd." Umrædd mynd af Benna og Alasdair með glóðaraugað. Benna og Alasdair til halds og trausts á tónleikunum verður Blásarasveit Reykjavíkur og hafa æfingar staðið yfir að undanförnu. „Þetta hljómar stórkostlega, sem er ekki vaninn á fyrstu æfingu. Það er ógeðslega flott sánd í hljómsveitinni," segir Benni, sem var veikur þegar hann samdi tónlistina. „Mér datt þetta fyrst í hug þegar ég var með hita og óráð uppi í rúmi og leið hræðilega. Svo sá ég fyrir mér gróflega þessa hugmynd og fór að pæla í hvernig ég ætlaði að hafa hana. Svo fattaði ég að ég var orðinn fullfrískur." Í textunum blanda þeir félagar saman íslensku og skoskri ensku svo úr verður nánast nýtt tungumál. Tónleikarnir verða í Íslensku óperunni á fimmtudagskvöld og í Ketilhúsinu á Akureyri á laugardaginn á tónlistarhátíðinni AIM. - fb Hér eru nánari upplýsingar um tónleikana.
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira