Grunur um að ríkissjóður hafi verið svikinn um skatt 20. mars 2010 19:38 Skúli Eggert Þórðarson er ríkisskattstjóri.
Ríkisskattstjóri hyggst skoða hvort hlutabréfakaup, sala fyrirtækja og eignarhaldsfélaga hafi verið talin fram. Grunur leikur á að ríkissjóður hafi oft verið svikinn um skatt af hagnaði af þessum viðskiptum. Til stendur að skoða fjögurra ára tímabil líkt og gert var við framtöl einstaklinga. Í vikunni kom fram hjá Greiningardeild Ríkisskattstjóra að einstaklingar hafi ekki gert grein fyrir sölu á hlutabréfum sem nam 127 milljörðum króna á framtölum sínum fyrir árin 2004 til 2008. Gera má ráð fyrir að þar leynist nokkuð af ósóttum skattstofnum en eftir er að draga frá þessari upphæð kaupverð hlutabréfanna. Á þá upphæð leggst svo 10% fjármagnstekjuskattur en Ríkisskattstjóri hefur auk þess heimild til að leggja á 25% álag til viðbótar hafi menn svikist um að gefa upp hagnaðinn. Þá leikur grunur á að lögaðilar; eins og fyrirtæki og eignarhaldsfélög, hafi einnig í ríkum mæli svikist um að gefa hlutabréfaviðskipti sín upp í framtölum og því ekki greitt fjármagnstekjuskatt af hagnaði af viðskiptunum. Til stendur að gera stikkprufu á nokkrum lögaðilum áður en ákveðið er hvort ráðist verði í nánari skoðun á málinu. Það yrði gert með því að bera saman gögn sem hafa borist frá bönkunum; t.a.m. kennitölur lögaðilanna, umfang og fjölda viðskipta, við ársreikninga. Ekki er enn hægt að segja til um hversu miklu þetta gæti skilað í ríkiskassann en ljóst er að lögaðilar áttu í umfangsmiklum viðskiptum með hlutabréf í góðærinu og hagnaður af þeim nam gríðarlega háum fjárhæðum.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Fleiri fréttir Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Sjá meira