Söngleikur um klámleikkonu 7. ágúst 2010 06:00 Lovelace lék í klámmyndinni umdeildu Deep Throat sem kom út árið 1972. „
Hann er ekkert klámfenginn eða neitt svoleiðis, segir Óskar Eiríksson, leikhúsframleiðandi. Söngleikur byggður á ævi Lindu Lovelace, aðalleikkonu klámmyndarinnar umdeildu Deep Throat, var frumsýndur á stærstu leikhúshátíð í heimi, Edinborg Fringe Festival, í gær. Óskar er maðurinn á bak við söngleikinn ásamt samstarfsaðilum frá Los Angeles. Hann segir söngleikinn ekki vera grófan. „Þetta er meira um líf hennar. Maður á kannski ekki að fara með tólf eða fjórtán ára krakka á hann en kannski sextán ára og upp úr. Þetta er ekki gert til að hneyksla áhorfendur, ekki nema að því leyti hversu hræðilegt líf hennar var.“ Lovelace, sem lést árið 2002, hélt því fram að fyrsti eiginmaður hennar hefði þvingað hana til að leika í myndinni. Eftir að hafa leikið í henni barðist hún ötullega gegn klámi og hélt fyrirlestra víða. Söngleikurinn var fyrst sýndur í Los Angeles í janúar í fyrra og gekk í hálft ár við góðar undirtektir. Hann fékk sautján tilnefningar til hinna ýmsu verðlauna og hreppti sjö. „Það var ákveðið að Edinborg yrði næsta skref til að sjá hver viðbrögðin yrðu. Aðalástæðan var að kynna þetta fyrir Evrópu til að sjá hvort það væri áhugi fyrir þessu.“ Eingöngu bandarískir leikarar taka þátt í söngleiknum, sem verður sýndur í fjórar vikur, sjö sinnum í viku. Þess má geta að kvikmynd er í bígerð um ævi Lovelace og mun Lindsay Lohan leika aðalhlutverkið. „Ég held að sú sýning hafi sprottið út frá söngleiknum,“ segir Óskar. -fb
Mest lesið Segir sig frá hlutverkinu vegna óánægju með upprunann Bíó og sjónvarp Catherine O'Hara er látin Lífið Óbilandi trú á eigin ágæti Gagnrýni Dragi úr trúverðugleika Eddunnar og útiloki fagfólk Bíó og sjónvarp Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Lífið „Ég er femínisti“ Lífið Ólafur Darri verður Þór Bíó og sjónvarp Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa Lífið Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Lífið Fleiri fréttir Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“