Lífið

Sár á hnjánum

Taylor Momsen. MYND/Cover Media
Taylor Momsen. MYND/Cover Media

Hnén á 17 ára leikkonunni Taylor Momsen sem slegið hefur í gegn í sjónvarpsþáttaröðinni Gossip Girl eru sár eftir að hún lék í tónlistarmyndbandi á dögunum þar sem hún skríður um gólf.

Leikkonan er einnig söngkona rokkhljómsveitarinnar The Pretty Reckless. Í myndbandinu við lagið Miss Nothing skríður Taylor ekki eingöngu um gólfin heldur brýtur hún glugga og bramlar nánast allt sem verður á vegi hennar.

Taylor gat varla gengið heilu dagana eftir tökurnar.

„Þetta var erfitt ég var mjög sár á hnjánum og þetta var langur strangur dagur. Ég hafði samt gaman af þessu," sagði Taylor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.