Ragnhildur fékk námsstyrk í Los Angeles 9. ágúst 2010 08:15 Ragnhildur heldur til Los Angeles um miðjan mánuðinn til að hefja nám í kvikmyndagerð.fréttablaðið/stefán „
Ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið styrkinn því annars hefði ég ekki möguleika á að fara í námið. Löngunin í framhaldsnám hefur blundað í mér lengi og með þessum styrk verður þetta að veruleika,“ segir Ragnhildur Magnúsdóttir, kvikmyndagerðarkona. Ragnhildur flytur til Bandaríkjana um miðjan mánuðinn til að fara í nám í kvikmyndagerð í New York Film Academy í Los Angeles. Ragnhildur notaði myndina sína From Oakland til Iceland sem umsókn og hlaut styrk frá skólanum sem gerir henni fært að láta drauminn rætast. „Kvikmyndabakterían hefur í raun bara ágerst eftir að ég gerði myndina mína. Ég hef unnið báðu megin við myndavélina en mér finnst kvikmyndagerðin sjálf mjög skemmtileg. Þetta nám sem ég fer í inniheldur einnig fjármögnun og handritakrufningu svo eitthvað sé nefnt,“ segir Ragnhildur. Námið sem Ragnhildur fer í er um eitt ár, með möguleika á að bæta við sig aukaári. Sambýlismaður hennar, rithöfundurinn Mikael Torfason, fer með Ragnhildi út og ætlar hann að fara í nám í ensku. „Við verðum allavega úti á meðan við klárum námið en það fer allt eftir því hvað kemur sér best fyrir fjölskylduna hvað við gerum svo.“ Los Angeles er á heimaslóðum Ragnhildar þar sem hún bjó í Kaliforníu helming ævi sinnar. „Ég var í gagnfræðaskóla í Suður-Kaliforníu og útskrifaðist úr stjórnmálafræði frá San Fransisco. Ég uppgötvaði þegar ég fór að undirbúa þessa flutninga að ég á ennþá slatta af vinum þarna frá þeim tíma. Auk þess sem fjölskyldan mín býr í Kaliforníu. Þannig að ég á marga góða að þarna og með þeirra hjálp er allt skipulag að verða komið á hreint,“ segir Ragnhildur spennt fyrir því sem koma skal. - ls
Mest lesið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Tónlist Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bansi í Feneyjum Lífið Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Lífið samstarf Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bansi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Sjá meira