Lífið

Húðflúrin hrikaleg mistök

Kelly Osbourne. MYND/BANG showbiz
Kelly Osbourne. MYND/BANG showbiz

Kelly Osbourne ætlar að láta fjarlægja nokkur húðflúr sem hún hefur látið setja á líkama sinn í gegnum tíðina.

Kelly er með alls fimmtán húðflúr sem hún segir að flest séu misheppnuð.

„Ég hef ákveðið að láta fjarlægja nokkur til að byrja með. Þau sem hafa merkingu fyrir mig persónulega fá að vera áfram og þau sem passa við húðflúrin sem bróðir minn er með á líkama sínum verða líka áfram," viðurkenndi Kelly.

„Ég vil losna við nótnaborðið sem er á handleggnum á mér. Ég kann ekki einu sinni að spila á píanó og ég vil líka fjarlægja hjartað og beinin á úlnliðnum á mér," útskýrði Kelly.

„Þegar ég var yngri fannst mér húðflúr virkilega töff. Ég fékk mér þau af því að það stuðaði mömmu. Mér leið illa á þessum tíma og veit ekki almennilega af hverju ég lét setja þau á mig."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.