Forsetafrúin krefst afsökunarbeiðni frá Telegraph 19. mars 2010 06:00 ekkert samband <B>Dorrit</B> neitar að hafa átt í ástarsambandi við kaupsýslumanninn <B>Vincent Tchenguiz</B>. Hún neitar einnig að hafa kynnt hann og bróður hans Robert Tchenguiz, fyrir íslenska fjármálaheiminum og fer fram á afsökunarbeiðni frá vikublaðinu Sunday Telegraph. „
Dorrit er mjög sár yfir þessum alranga fréttaflutningi sem birtist í þessu breska blaði og í Fréttablaðinu. Í honum felst aðför að mannorði hennar," segir Örnólfur Thorsson forsetaritari. Fullyrt var í breska blaðinu Sunday Telegraph á dögunum að forsetafrúin Dorrit Moussaieff og kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz hafi átt í ástarsambandi. Haft var samband við blaðamanninn Jonathan Russell sem sagðist telja að sambandið hafi átt sér stað á níunda áratug síðustu aldar. Þá er því haldið fram að Dorrit hafi kynnt bræðurna Vincent og Robert Tchenguiz fyrir íslenska fjármálaheiminum. Þeir fengu lán upp tæpa 300 milljarða króna frá Kaupþingi í útrásinni og hafa gert yfir 400 milljarða skaðabótakröfu í þrotabú bankans. Örnólfur segir að fullyrðingarnar séu báðar alrangar. „Hún hefur hvorki átt í ástarsambandi við þennan mann né kynnt hann fyrir íslenskum bankamönnum," segir hann. „Hún hefur falið lögfræðingi sínum að hafa samband við blaðamanninn og blaðið og fara fram á formlega afsökunarbeiðni ásamt því að fréttin sé dregin til baka." Fréttablaðið hafði samband við Jonathan Russell, höfund fréttarinnar í Sunday Telegraph, í kjölfarið á yfirlýsingu frá forsetafrúnni. Spurður hvort hann stæði við fréttina sagðist hann hafa skrifað hana fyrir tveimur vikum. Þá hafi ekki borist beiðni um leiðréttingu og að þar við sæti. Vikublaðið Sunday Telegraph er sunnudagsútgáfa dagblaðsins Daily Telegraph og er gefið út hátt í 530.000 eintökum. Daily Telegraph er víðlesnasta dagblað Bretlands þegar götublöð á borð við The Sun eru ekki talin með. Blaðið skýtur þar með dagblöðum á borð við Times og Guardian ref fyrir rass. Aðeins þessi þrjú gamalgrónu blöð: Daily Telegraph, Times og Guardian eru viðurkennd af breska ríkinu sem „paper of record" - eða blað sem stundar fagmannleg vinnubrögð og er til þess fallið að birta opinberar tilkynningar. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Húðdrottning bauð í gellugusu Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Sjá meira