Lone Ranger aftur af stað 25. nóvember 2010 22:00 Johnny Depp mun leika Tonto í Lone Ranger en Gore Verbinski mun að öllum líkindum leikstýra myndinni.
Eftir mikið volk í ólgusjó Hollywood er kvikmynd um Lone Ranger, grímuklædda kúrekann í villta vestrinu, og hestinn hans Silver loksins að verða að veruleika. Disney-fyrirtækið, í samstarfi við stórmyndakanónuna Jerry Bruckheimer, ætlar að framleiða kvikmynd um þessa frægustu persónu George W. Trendle sem varð feikilega vinsæl í amerísku útvarpi og sjónvarpi. Sjóræningjaleikstjórinn Gore Verbinski hefur verið ráðinn í leikstjórastólinn og Johnny Depp mun að öllum líkindum leika ráðagóða indíánann Tonto. Ekki er hins vegar vitað hver fær að klæðast hinum íðilfagra bláa búningi, setja á sig hvíta hattinn og svörtu grímuna sem breyttu hinum dagsfarsprúða John Reid í kúrekahetjuna. Það var kvikmyndavefurinn thewrap.com sem greindi fyrstur frá því að gera ætti kvikmyndina undir merkjum Disney en það hefur lengi staðið til. Columbia-kvikmyndaverið tilkynnti árið 2002 að það ætlaði að gera kvikmynd en fimm árum seinna reyndu Weinstein-bræðurnir að kaupa kvikmyndaréttinn enda hafði lítið gerst. Það var síðan Bruckheimer sem greip gæsina þegar hún gafst en hann hefur yfirleitt haft gott nef fyrir góðum gróða. Verbinski er nú upptekinn við tökur á fjórðu sjóræningjamyndinni með Johnny Depp og er fastlega gert ráð fyrir því að hann hefji undirbúning við kúrekamyndina strax eftir hana. - fgg
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Sjá meira