Íslendingar hjálpuðu keppendum í Amazing Race Boði Logason skrifar 21. júní 2010 11:15 Arnar Freyr áður en þeir frændur slógust í för með keppendunum og hjálpuðu þeim. Mynd/AFM „
Þetta var magnað, við vorum bara að skoða knattspyrnuleikvanginn frá HM 2002 þegar við tökum allt í einu eftir þessu liði," segir Arnar Freyr Magnússon sem fór til Suður-Kóreu ásamt frænda sínum Heimi Hannessyni í nokkra daga fyrir stuttu. Þeir frændur ákváðu með litlum fyrirvara að fara skoða landið og lentu heldur betur í skemmtilegri reynslu. Þeir hittu keppendur í bandaríska raunveruleikaþættinum Amazing Race sem voru þar í vandræðum í neðanjarðarlest í borginni Seoul. Saman í neðanjarðarlest Arnar Freyr segir að hann hafi kveikt á perunni strax að um Amazing Race hafi verið að ræða en hafi verið fljótur að taka upp myndavél eins og sönnum túrista sæmir. "Við höldum síðan áfram okkar striki, og tökum fljótlega eftir því að þeir eru að taka sömu lest og við. Fyrir utan lestarstoppistöðina sjáum við að þeir eru í einhverjum vandræðum og eru að reyna spyrja heimamenn hvaða lest þeir eigi að taka, þeir skilja nú ekki mikið í ensku svo allt í einu snúa þeir sér að okkur og spyrja okkur hvort við þekkjum neðanjarðarlestarkerfið. Við vorum búnir að vera þarna í nokkra daga svo við vissum eitthvað smá og þá kom í ljós að þeir voru að fara á svipaðan stað og við. Við sögðum þeim bara að elta okkur í gegnum lestarkerfið og við myndum svo segja þeim hvenær þeir ættu að fara út." Keppendurnir að leita ráða hjá heimamönnumMYND/AFM Ekkert „fake" Þeir frændur upplifðu alla stemminguna í kringum þættina og segir Arnar Freyr að þetta hafi ekki verið neitt "fake". "Nei alls ekki, þarna voru myndavélar og hljóðmenn sem fylgdu þeim hvert sem er. Þeir hjálpuðum þeim ekkert, þeir voru algjörlega upp á sig komnir. Það var magnað að fylgjast með þessu og tilviljun að hitta þá." Hann segir heimamenn ekki hafa áttað sig á því hversu stór þátturinn er eða hversu mikla athygli svona þáttur fær út um allan heim. "Ég efast um það, það voru allavega ekki margir að horfa á þá eða sýna þeim mikla athygli."Bíður spenntur eftir þættinum Aðspurður hvort að keppendurnir hafi ekki borgað þeim eitthvað fyrir aðstoðina segir hann svo ekki vera. "Nei, mér skilst að þeir hafi ekki mikinn pening. Það var gaman að geta hjálpað þeim." Arnar Freyr segist bíða spenntur eftir því þegar að þátturinn verður sýndur, sem er að öllum líkindum í haust. "Já ég bíð alveg gríðarlega spenntur eftir þessu í haust, ég get ekki beðið," segir Arnar hlæjandi. Í rúllustiga á lestarstöðinniMYND/AFM Klikkaður aðdáandi Þegar heim var komið fékk Arnar heldur furðuleg skilaboð frá æstum aðdáenda þáttanna á Facebook. "Þetta var frekar "spúkí". Þegar ég kom heim núna til Íslands hafði einhver aðdáandi þáttanna sent mér skilaboð. Ég skil ekki hvernig hann vissi að ég var að hjálpa keppendunum, það er mér algjörlega hulin ráðgáta. En þar bað hann mig um að útskýra fyrir sér hvernig þetta var, og hver væri að vinna og eitthvað. Ég hef nú alveg horft á þessa þætti með öðru auganu, en þetta sannaði fyrir mér hvað er til mikið af skrítnu fólki," segir Arnar Freyr að lokum.
Mest lesið Þroskaþjófur á skjánum: Krakkar jafnvel í vandræðum með að tala íslensku Áskorun Skorar á Unu Torfa í tilefni dagsins Lífið Leggur til meiriháttar átak til að lengja svefn Íslendinga Lífið Tjaldsungi klaktist út eftir tæpar tvær vikur á ofninum Lífið Krakkatían: Fjöll, firnindi og tónlist Lífið Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Lífið Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Lífið Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Lífið Munnvatnið skiptir öllu máli Lífið Kvikmyndin O í forvali til Óskarsverðlauna Lífið Fleiri fréttir Tjaldsungi klaktist út eftir tæpar tvær vikur á ofninum Skorar á Unu Torfa í tilefni dagsins Krakkatían: Fjöll, firnindi og tónlist Leggur til meiriháttar átak til að lengja svefn Íslendinga Kvikmyndin O í forvali til Óskarsverðlauna Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Munnvatnið skiptir öllu máli Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Heitur Teitur selur Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann Króli og Birta eiga von á barni Glæsihöll Haraldar við Elliðavatn Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Sabrina Carpenter gagnrýnd fyrir að ýta undir hlutgervingu kvenna Bjössi í Mínus er ný rödd Sýnar Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Gríman og glens í Borgarleikhúsinu Vinsælasta TikTok-stjarna heims handtekin og yfirgefur Bandaríkin Ævintýralega flóknar útskýringar á framtaksleysi og leti Pharoahe Monch með De La Soul á Lóu Skvísaðu þig upp fyrir íslenska sumarið Villi á Benzanum slapp með skrekkinn Átta ára meðgöngu loksins að ljúka Forsetabörnin loksins komin heim Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Sjá meira