Fólkið í kjallaranum á fjalirnar í haust 10. ágúst 2010 06:00 Ilmur Kristjánsdóttir fer með aðalhlutverkið í leikritinu Fólkið í kjallaranum í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur.fréttablaðið/anton
Leikritið Fólkið í kjallaranum, sem er byggt á vinsælli skáldsögu Auðar Jónsdóttur, verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu í byrjun október. „Ég er einn af þeim sem hreifst af bókinni eins og svo margir aðrir,“ segir Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri, sem hlakkar til að sjá sýninguna. „Þetta er frábær leikgerð og með svona sterkum leikhópi getur maður ekki annað en iðað í skinninu að sjá þetta fara á svið.“ Aðalsöguhetja verksins, Klara, verður leikin af Ilmi Kristjánsdóttir. Með önnur hlutverk fara Guðjón Davíð Karlsson, Jóhann Sigurðsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Birgitta Birgisdóttir og Kristín Þóra Haraldsdóttir. Leikstjóri verður Kristín Eysteinsdóttir og leikgerðina annast Ólafur Egill Egilsson. Bókin Fólkið í kjallaranum kom út árið 2004. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Bókin hefur selst í um þrettán þúsund eintökum hérlendis og verið þýdd á fjölda tungumála. Fólkið í kjallaranum fjallar um kvöldstund í lífi ungs pars sem býr í Hlíðunum. Þetta er ljúfsár saga en um leið uppgjör við ‘68 kynslóðina og venjubundnar hugmyndir um lífið og tilveruna. Nýtt leikár Borgarleikhússins verður kynnt í lok ágúst og bíða margir spenntir eftir komandi vetri. „Þetta verður fjölbreytt og kraftmikið en á sömu línu og verið hefur. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Magnús Geir. -fb
Mest lesið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Lífið Plokkað af krafti með forsetamaka Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Tónlist Fleiri fréttir Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bansi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Sjá meira