Frægir Íslendingar í rassvasabók 14. júlí 2010 08:45 Útgáfufélag Hugleiks Ókeibæ(!)kur gefur nú út fjórðu bókina í rassvasabókaröð sinni. „
Þessi bók er fræðandi og skemmtileg þó þú sért ekki að nota hana í leiknum Hver er maðurinn? Hún rifjar upp marga aðila sem fólk hefur gleymt en gaman er að muna aftur," segir skopmyndateiknarinn og útgefandinn Hugleikur Dagsson. Útgáfufélagið Ókeibæ(!)kur hefur sent frá sér fjórðu bókina í rassvasabókaröð sinni. Bókin heitir Hver er maðurinn? og er höfundur bókarinnar undir dulnefninu Meðal-Jón. Það eru Arnar Ásgeirsson og Styrmir Örn Guðmundsson sem myndskreyta bókina en þeir félagar hafa unnið þó nokkuð saman. Bókin byggir á samnefndum leik sem Íslendingar spila gjarnan á ferðalögum sínum. Í bókinni eru ýmsir frægir Íslendingar, sem eru þó ekki of frægir, taldir upp og þeir túlkaðir á skemmtilegan hátt. „Teiknistíll þeirra Arnars og Styrmis er ótrúlega svipaður og má líkja honum við „urban New York graffiti stíl" með skrípó ívafi. Þeim félögum tekst að gera persónunum ótrúleg skil í myndum sínum og fer það sjaldnast framhjá fólki um hvern ræðir," segir Hugleikur. Ástæða þess að höfundur er undir dulnefni er í raun engin sérstök. Hann kallar sig Meðal-Jón, og útskýrir það á þann hátt að „flestallir Íslendingar eru í raun ekkert nema meðal-Jón og það er höfundur líka." Í tilefni af útgáfu bókarinnar bjóða Ókeibæ(!)kur í pub quiz með séríslensku dægraþema í kvöld klukkan 20.00 á Karaoke Sports Bar á Frakkastíg. Það verða Maggi Noem og Steindi Jr. sem spyrja spurninga og Gísli Galdur ætlar að sjá um tónlist fyrir keppni. Þeir Maggi og Steindi hafa svipað þema í keppninnni og í bókinni, en en ekki það sama og í leiknum Hver er maðurinn?.
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira