Lífið

Eltir nornir í næstu mynd

Noomi Rapace er eftirsótt í Hollywood og er orðuð við hlutverk Grétu í hryllingsmynd byggðri á ævintýrinu um Hans og Grétu. 
Nordicphotos/getty
Noomi Rapace er eftirsótt í Hollywood og er orðuð við hlutverk Grétu í hryllingsmynd byggðri á ævintýrinu um Hans og Grétu. Nordicphotos/getty
Sænska leikkonan Noomi Rapace er orðuð við hlutverk í hryllingsmynd sem byggð er á ævintýrinu um Hans og Grétu. Rapace, sem skaust upp á stjörnuhimininn eftir hlutverk sitt sem tölvuhakkarinn Lisbet Salander, er nú eftirsótt í Hollywood þar sem hún er stödd um þessar mundir til að freista gæfunnar.

Myndin ber nafnið Hansel and Gretel, The Witch Hunters og er áætluð frumsýning næsta haust. Þegar er búið að ráða í hlutverk Hans en það er einn eftirsóttasti leikarinn núna Jeremy Renner, sem var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik í sinn í myndinni Hurt Locker. Hann er mikill aðdáandi sænsku leikkonunnar og segir að þó ekki sé búið að skrifa undir samninga sé Rapace líklegust til að landa hlutverkinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.