Fyrirsæta hannar gjafapappír 22. desember 2010 06:00 Hæfileikarík Elísabet Davíðsdóttir, fyrirsæta og ljósmyndari, hefur hannað stórskemmtilegan og sérstakan gjafapappír. fréttablaðið/vilhelm
Elísabet Davíðsdóttir fyrirsæta og móðir hennar hafa hannað gjafapappír með munstri úr náttúrunni. Elísabet Davíðsdóttir, fyrirsæta og ljósmyndari, hefur hannað stórskemmtilegan gjafapappír í samstarfi við móður sína, Emmu Axelsdóttur innanhúsarkitekt. Hugmyndina að pappírnum sóttu mæðgurnar beint til náttúrunnar og getur fólk meðal annars valið á milli klakabreiðumynsturs, hellubergs, mosa og holtagrjóts. „Mér og mömmu hefur alltaf þótt mjög gaman að pakka inn gjöfum. Einu sinni eftir að það hafði snjóað töluðum við um hvað það væri gaman ef maður gæti pakkað inn gjöf í svona fallegan snjó og það var eiginlega út frá því sem hugmyndin varð til," útskýrir Elísabet. Pappírinn er fáanlegur í sex útgáfum og eru mynstrin gerð með innihald pakkans í huga. „Við erum með snjó og mosamynstur fyrir mjúku pakkana, klakabreiðu og helluberg fyrir þá hörðu og tvær útgáfur af holtagrjóti fyrir óreglulegu pakkana. Holtagrjótið er skemmtilegt vegna þess að það getur stundum verið erfitt að greina hvort um pakka eða raunverulegan grjóthnullung er að ræða." Elísabet segir viðtökurnar hafa verið góðar og útilokar ekki að þær mæðgur muni bæta við línuna í nánustu framtíð. „Það er auðvitað mjög gaman að fólk skuli hafa tekið svona vel í þetta og þetta virkar mjög hvetjandi á okkur mæðgurnar." Innt eftir því hvort jólagjöfunum frá henni sjálfri verði pakkað inn í pappírinn góða svarar Elísabet því játandi. „Já, ég á auðvitað eftir að pakka öllum mínum gjöfum inn í svona pappír," segir hún að lokum og hlær. Gjafapappírinn fæst í verslunum Epal, Iðu, Kraumi og Máli og menningu. Einnig verður fatahönnuðurinn Steinunn með pappírinn í boði fyrir sína viðskiptavini.sara@frettabladid.is
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira