Lífið

Hætt að eyða orkunni í vinsældir

Jennifer Lopez. MYND/Cover Media
Jennifer Lopez. MYND/Cover Media

Jennifer Lopez, 41 árs, segist njóta þess að eldast og núna er hún loksins búin að átta sig á því að hún sjálf skiptir máli.

Söng- og leikkonan er hætt að vera stöðugt að leggja sig fram við að halda öðrum ánægðum og vera vinsæl.

Jennifer viðurkennir að hér áður fyrr eyddi hún orkunni í að passa upp á að allir í kringum hana væru ánægðir en í dag hugsar Jennifer mun betur um sjálfa sig, eiginmann sinn, Marc Anthony, og tveggja ára tvíburana þeirra, Max og Emme.

„Ég er miklu meðvitaðri um sjálfa mig í dag. Núna hugsa ég um mig sjálfa og fólkið sem skiptir mig raunverulega máli," sagði Jennifer.

Við erum á Facebook. Vertu með!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.