Halldór Laxness hálfgerður Forrest Gump Íslendinga 1. september 2010 09:15 ý heimildarmynd um nóbelskáldið Halldór Kiljan Laxness er nú í bígerð en hún mun fjalla um stjórnmálaþátttöku Halldórs og nærveru hans í heimssögulegum viðburðum.
Afgangurinn af leyniskjölum bandarísku leyniþjónustunnar um Halldór Kiljan Laxness og dvöl hans í Hollywood er kominn í öruggt skjól bandaríska utanríkisráðuneytisins. Og þar með er talið ólíklegt að þau verði einhvern tímann gerð opinber þar sem skjöl í vörslu ráðuneytisins teljast varða þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Þetta segir Halldór Þorgeirsson, kvikmyndagerðarmaður og tengdasonur Halldórs, en hann hyggst gera heimildarmynd um nóbelskáldið. Halldór grunar að Bandaríkjastjórn hafi engra sérstakra hagsmuna að gæta með að breiða yfir skjölin með þessum hætti, þetta sé miklu frekar vinargreiði við einhverja Íslendinga. Fram kom í Fréttablaðinu snemma á þessu ári að bandaríski fræðimaðurinn Chay Lemoine hefði sömuleiðis komið að lokuðum dyrum í utanríkisráðuneytinu en fjölskylda Halldórs hefur fengið að sjá þrettán lítilfjörleg skjöl. RÚV og sænska ríkissjónvarpið koma að gerð myndarinnar sem og Kvikmyndamiðstöð Íslands. „Svíum virðist einhvern veginn renna blóðið til skyldunnar, þeir hafa alltaf haft áhuga á Halldóri enda eiga þeir Nóbelinn. Í þeirra huga er hann mjög merkilegt, norrænt skáld og vildu gjarnan vera með," segir Halldór. Tökuliðið mun ferðast til höfuðborgar Bandaríkjanna sem og annarra Evrópulanda en Halldór skrifar sjálfur handritið ásamt Sigurði Valgeirssyni. Reiknað er með að tökur hefjist á allra næstu vikum. Halldór segir heimildarmyndina ekki vera dæmigerða heimildarmynd um Halldór, þar sem hann sést iðulega á röltinu kringum heimili sitt að Gljúfrasteini. Myndin eigi að fjalla um skáldið í heimssögulegu tilliti og pólitíkina sem hann lifði og hrærðist í. „Við höfum oft grínast með það að Halldór væri svona Forrest Gump okkar Íslendinga, hann virtist, eins og bandaríska söguhetjan, hafa einstakt lag á að vera viðstaddur heimssögulega viðburði." Halldór nefnir til að mynda Búkarín-réttarhöldin í Moskvu 1938 þegar hreinsanir Stalíns stóðu yfir, Ólympíuleikana í Berlín árið 1936, þegar sjálfur Hitler sýndi mátt sinn, og svo var Halldór í Ameríku þegar kreppan mikla reið yfir árið 1929. Að ekki sé minnst á þá miklu örlagatíma sem íslenska þjóðin gekk í gegnum á þessum árum. Halldór segir mikið til af lifandi myndum af Halldóri, sennilega hafi fáir Íslendingar verið myndaðir jafnmikið og skáldið. „Það er mikið til af myndum í Þýskalandi, sérstaklega í Köln, og þetta eru brot sem hafa aldrei áður komið fyrir augu almennings." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira