Handritin setið á hakanum 26. september 2010 08:00 Anna Th. Rögnvaldsdóttir.
Út er komin fyrsta frumsamda handbókin um handritskrif á íslensku, bókin Ritun kvikmyndahandrita - praktísk handbók eftir Önnu Th. Rögnvaldsdóttur kvikmyndagerðarmann. Anna ákvað að skrifa bókina eftir að hafa kennt handritaskrif við Kvikmyndaskóla Íslands og varð vör við skort á kennslubókum á íslensku og íslensku námsefni um handritsgerð. Hún ákvað að bæta úr því. „Það er algeng skoðun að nemendur, sem eru í raun á háskólaaldri, geti stuðst við erlendar kennslubækur. Staðreyndin er hins vegar sú að í öllum fögum verður fólk að tileinka sér ákveðin grunnhugtök á móðurmálinu – nemendur í eðlisfræði við HÍ lesa kannski eingöngu bækur á ensku í sínu námi en grunnþekkinguna fengu þeir úr íslenskum bókum.“ Lykill að erlendum ritumAnna miðaði því við að skrifa bókina sem grunn fyrir algjöra byrjendur á sviði kvikmyndagerðar, sem geti líka nýst þeim sem lykill að erlendum námsbókum. Að hennar mati getur bókin þó einnig komið fleirum að góðum notum. „Hún getur eflaust nýst almennum kvikmyndaáhugamönnum, til dæmis geymir hún orðalista yfir grunnhugtök og ýmsan fróðleik sem er til þess fallinn að auka almennt kvikmyndalæsi.“ Anna segir litla tekjumöguleika helstu ástæðu þess að bók sem þessi hafi ekki komið út fyrr hér á landi, enda fjalli hún um afar afmarkað svið. Sjálf fékk hún styrk frá þróunarsjóði námsgagna við ritun bókarinnar, auk þess sem hagsmunaaðilar úr greininni lögðu henni lið við eftirvinnslu og prentum. Hún telur að með tilkomu bókarinnar sé ekki mikil þörf á stærri og ítarlegri kennslubók um kvikmyndagerð á íslensku. Afgangsstærð á ÍslandiÞótt nokkuð sé liðið síðan kvikmyndalistin skaut rótum hér á landi hefur íslenskum kvikmyndum oftar en ekki verið legið á hálsi fyrir slaka handritsgerð. Anna tekur undir þá gagnrýni. „Ætli handritsgerð hafi ekki verið látin sitja á hakanum hér á landi í gegnum tíðina vegna þess að atvinnumöguleikarnir eru svo fáir. Það leggur enginn á sig margra ára vinnu við að ná tökum á jafn sérhæfðri tegund ritstarfa því tekjumöguleikarnir eru svo litlir. Hins vegar veit ég um að minnsta kosti þrjá Íslendinga sem starfa sem handritshöfundar erlendis; það er því ekki eins og Íslendingar séu sérlegir sauðir í handritsskrifum. Okkur hefur aðeins skort tækifærin.“ bergsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves Sjá meira