Tiger Woods malar gull á ný 31. mars 2010 06:00 Gullkálfur Þrátt fyrir allt er Tiger Woods mikill gullkálfur í golfinu og sérfræðingar vestanhafs búast við því að hann eigi eftir að setja met í sjónvarpsáhorfi á golf þegar Masters-mótið hefst í næsta mánuði. nordicphotos/Getty
Hrunadans Tigers Woods – kvennafarið – lék lykilhlutverk í fyrirsögnum helstu fjölmiðla heims svo vikum og mánuðum skipti. Nú undirbýr kylfingurinn endurkomuna af kappi og markaðsöflin skála í kampavíni á meðan. Tiger Woods tilkynnti 16. mars að hann hygðist taka þátt í Masters-mótinu sem haldið er á Augusta-vellinum í Georgiuríki. Mótið er eitt af fjórum stóru mótunum á bandarísku mótaröðinni í golfi. Tiger hefur verið frá keppni í fimm mánuði eða síðan fjölmiðlar greindu frá því að hann hefði margoft haldið framhjá eiginkonu sinni, hinni sænsku Elin Nordergren. Endurkomu Tigers er beðið með mikilli eftirvæntingu og það er ekki síst auglýsendur og eigendur sjónvarpsstöðva sem hugsa sér gott til glóðarinnar þegar þessi fremsti kylfingur heims mundar kylfurnar á ný. Samkvæmt bandaríska viðskiptatímaritinu Business Week er nær öruggt að Tiger slái eigið sjónvarpsáhorfsmet. Aldrei hafa fleiri horft á golf í sjónvarpi en þegar Woods vann fyrsta Masters-mótið sitt 1997 en sextán milljónir áhorfenda horfðu á hann tryggja sér sigur. Samkvæmt Business Week er ekki ólíklegt að um 20 milljónir manna komi til með að fylgjast með Tiger á flötum og brautum Augusta-vallarins enda horfði svipaður fjöldi á afsökunarbeiðni hans í beinni útsendingu fyrir skemmstu. Business Week greinir jafnframt frá því að auglýsendur gangi nú nánast af göflunum. Þeir séu jafnvel reiðubúnir til að greiða helmingi hærra verð fyrir auglýsingapláss í útsendingu en ella. Jafnvel sérhæfð sjónvarpsstöð eins og Golf Channel gerir sér vonir um áhorfsaukningu upp á 25 prósent og á það hefur verið bent að áhorf á golfmót hefur dregist saman um allt að helming frá því að Tiger dró sig úr keppni til að sinna einkalífinu. Sumir vilja meina að endurkoma Tigers á golfvöllinn verði næst-vinsælasti sjónvarpsviðburður síðustu fimmtán ára í Bandaríkjunum. Aðeins innsetningarræða Baracks Obama verði ofar á þeim lista. Einn þeirra er Sean McManus, yfirmaður íþróttadeildar hjá CBS-sjónvarpsstöðinni. Hann bendir á þá staðreynd að blaðamannafundur Tigers, þar sem kylfingurinn baðst afsökunar á framferði sínu, hafi fengið inni hjá öllum stærstu sjónvarpsstöðvum Bandaríkjanna. Jafnvel þótt hafi ekki mátt spyrja neinna spurninga. „Hvað sem hann gerir á golfvellinum á Augusta þá mun fólk hafa áhuga á að sjá hann að verki,“ sagði McManus í samtali við vefsíðuna ajc.com. Jafnvel vefmiðlar eru í startholunum því tveir fyrstu keppnisdagarnir eru á virkum degi, fimmtudag og föstudag. Má fastlega búast við því að fólk sem er í vinnu stelist til að horfa á útsendingu frá mótinu á vinnutíma. Golfsérfræðingar hafa þó bent á að menn skyldu ekki búast við of miklu af Tiger, hann hafi ekki keppt á golfmóti í fimm mánuði. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Fleiri fréttir Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Sjá meira