Lífið

Framkvæmdastjóri móttökusviðs færir sig um set

30 ára reynsla Halldór Ómar hefur verið yfirmaður móttökusviðs Regnbogans frá upphafi. Hann færir sig um set yfir til Háskólabíós nú þegar óvissa er um framtíð Regnbogans.
fréttablaðið/valli
30 ára reynsla Halldór Ómar hefur verið yfirmaður móttökusviðs Regnbogans frá upphafi. Hann færir sig um set yfir til Háskólabíós nú þegar óvissa er um framtíð Regnbogans. fréttablaðið/valli

„Ég kveð Regnbogann með söknuði. Ég er búinn að vera þarna í 30 ár og bý yfir mikilli reynslu,“ segir Halldór Ómar Sigurðsson, framkvæmdastjóri móttökusviðs Regnbogans.

Fréttablaðið greindi frá því í gær að Regnboganum yrði lokað í sumar ef Sena finnur ekki rekstrarstoð undir bíóið og fær ekki betri leigusamning. Öllu starfsfólki hefur verið sagt upp störfum á meðan reynt er að greiða úr rekstrarvandanum. Halldór Ómar hefur starfað í kvikmyndahúsinu frá því að það var opnað árið 1980. Honum hefur verið tilkynnt að hann fái starf í Háskólabíói, ef Regnboganum verður lokað.

„Þetta er rétt. Björn Sigurðsson, rekstrarstjóri hjá Senu, var að segja mér að mér stendur til boða að fara í Háskólabíó. Ég vil gera það,“ segir Halldór, en hann var staddur í strætó á leiðinni í Regnbogann þegar Fréttablaðið náði í hann. „Ég verð í nýjum búningi og fæ nýtt spjald. Þar stendur Háskólabíó – framkvæmdastjóri móttökusviðs.“

Halldór hefur sett svip sinn á bæjarlífið, enda búinn að taka á móti gestum í Regnboganum og rífa af miðum í 30 ár. Hann er þó spenntur fyrir nýjum starfsvettvangi, en gerir eina kröfu áður en hann yfirgefur Hverfisgötuna: „Ég verð að láta taka mynd af mér við Regnbogann þegar hann hættir.“ atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.