Davíð tilnefndur til verðlauna 19. apríl 2010 06:00 Davíð Charles Friðbertsson hefur verið tilnefndur til verðlauna á kvikmyndahátíðinni Swansea Bay Film Festival í Bretlandi.
Stuttmyndin, Vet Inte, í leikstjórn Davíðs Charles Friðbertssonar hefur verið tilnefnd til verðlauna í flokknum besta alþjóðlega stuttmyndin á kvikmyndahátíðinni Swansea Bay Film Festival. Hátíðin er haldin í Bretlandi 8. til 16. maí og er verndari hennar hin heimsþekkta leikkona Catherine Zeta-Jones. Davíð nam kvikmyndagerð og leikstjórn við kvikmyndaskólann Prag Film School og er stuttmyndin Vet Inte lokaverkefni Davíðs frá skólanum. Myndin er skotin á svonefnda Super 16-filmu og lauk Davíð við eftirvinnslu hennar nú í febrúar og samdi Steve Sampling tónlistina fyrir myndina. „Ég kláraði myndina í Berlín í febrúar og sendi hana svo áfram á stuttmyndahátíðir víðsvegar um heiminn. Það er mjög ánægjulegt að vera tilnefndur í flokki bestu stuttmynda með fyrstu myndina sína,“ segir Davíð, sem hyggst fara á hátíðina í Swansea. „Fjölskylda mín setti saman í púkk svo ég get verið viðstaddur. Það fylgir þessum bransa víst að þurfa að selja sig, kynna verk sín og skapa tengsl við aðila sem starfa innan bransans og þess vegna er gott að geta mætt á hátíðina,“ segir hann. Um þessar mundir vinnur Davíð að nýju handriti ásamt íslenskum og þýskum félögum, handritið fjallar um ungan pilt sem sendur er inn á Tsjernóbýl-svæðið skömmu eftir slysið til að hnupla verðmætum sem eftir urðu. Þýskur framleiðandi hefur nú þegar sýnt verkefninu áhuga og verður myndin að öllum líkindum framleidd þar í landi. „Handritið var upphaflega hugsað sem handrit að stuttmynd, en þýski framleiðandinn vildi kvikmynd í fullri lengd og við erum sem sagt að vinna í því þessa stundina,“ útskýrir Davíð. - sm
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Sjá meira