Lífið

Hera efnir til hnallþórukeppni á Eurovision-basar

Í eldhúsinu Hera Björk segist vera góð í að baka og ætlar meðal annars að mæta með kærleiksmöffins í Kringluna í dag.fréttablaðið/anton
Í eldhúsinu Hera Björk segist vera góð í að baka og ætlar meðal annars að mæta með kærleiksmöffins í Kringluna í dag.fréttablaðið/anton

Eurovision-hópurinn stendur fyrir fjáröflunarkökubasar í Kringlunni í dag. Hera ætlar að baka ýmislegt góðgæti og hvetur einnig landsmenn til að koma með kökur og styrkja gott málefni.

„Ég er mjög góð í að baka enda mikill sælkeri. Ég verð líka svo matsár ef ég fæ vondar kökur og vondan mat. Þannig að ég legg mig alveg sérstaklega fram,“ segir Hera Björk, Eurovision-fari Íslendinga í ár.

Hera og félagar ætla að efna til sérstaks fjáröflunarkökubasars í Kringlunni í dag.

Eurovision-hópurinn leggur til kökur, en liðtækar húsmæður og -feður eru einnig hvött til að koma með uppáhaldskökuna eða -brauðið sitt á staðinn og styrkja ferðalagið til Noregs.

Sjálf hófst Hera handa í eldhúsinu í gær. „Ég ætla að leggja til kærleiksmöffins. Það eru regnboga-hjartalagamöffins. Dásamlega fagrar,“ segir hún. „Svo ætla ég að blása til hnallþórukeppni. Þannig að ég ætla að baka einhverja rosalega hnallþóru.“

Mamma Heru tekur að sjálfsögðu þátt í bakstrinum og er þegar búin að selja eina köku. „Mamma er að baka hrísköku og appelsínuköku sem er búin að vera uppáhaldið mitt frá því að ég var lítil,“ segir Hera. „Frændi minn brjálaðist þegar hann heyrði þetta og er búinn að bjóða í eina strax. Hún má ekki seljast því hann ætlar að fá hana. Hann hefur ekki fengið svona köku frá því að hann fermdist og hann er rúmlega fertugur maður. Svo er ég búinn að frétta af kökum á leiðinni frá Hólmavík, sem er alveg æðislegt. Og það eru að koma kökur frá Selfossi og hugsanlega frá Egilsstöðum ef það fæst far undir þær.“

Ferðalagið til Noregs er mjög kostnaðarsamt, enda Noregur eitt það dýrasta í heimi. „Allir á RÚV eru að gera rosalega góða hluti og teygja sig eins langt og þeir geta,“ segir Hera. „En það er erfitt að fá styrktaraðila á þessum yndislegu tímum. Við þurfum smá hjálp og þá höfum við þetta opinbert og biðjum um hjálp.“ atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.