Óróa-leikkona vinsæl hjá strákum 29. nóvember 2010 21:00 María Birta Bjarnadóttir hefur slegið í gegn með leik sínum í unglingamyndinni Óróa. Fréttablaðið/Anton
Unglingamyndin Órói, í leikstjórn Baldvins Z, hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Myndin hefur einnig slegið í gegn á meðal íslenskra unglinga. Aðalleikarar myndarinnar hafa vart undan því að þiggja eða afþakka vinabeðnir á Facebook síðan myndin var frumsýnd í október. María Birta Bjarnadóttir, sem fór með hlutverk Júditar, hefur fengið ógrynnin öll af vinabeðnum frá ungum aðdáendum. „Þetta var aðallega í byrjun, rétt eftir að myndin var frumsýnd, og kom mér mjög á óvart. Ég átti alls ekki von á þessu. Ég hef samt afþakkað flestar vinabeiðnirnar því ég vil bara að vinir mínir hafi aðgang að Facebook-síðunni minni," segir hún. Aðspurð segist María Birta aðallega hafa fengið vinabeðnir frá unglingspiltum og sumir hafi jafnvel sent henni aðdáendabréf í gegnum síðuna. „Ég hafði samband við Ella á sínum tíma (Elías Helga Kofoed-Hansen) og spurði hvort hann væri líka að lenda í þessu. Hann játaði því en sagðist ekki hafa það í sér að neita fólki þannig að vinalistinn hans hefur stækkað hratt," segir María Birta hlæjandi. Einnig hefur heyrst að Haraldur Ari Stefánsson, sem fór með hlutverk Markúsar, hafi einnig fengið fjölda vinabeiðna og segist María Birta skilja það vel. „Það kemur mér ekki á óvart enda er þetta mjög myndarlegur strákur. Ég hefði örugglega bætt honum við listann minn ef ég væri unglingsstúlka," segir hún brosandi. Þegar hún er að lokum innt eftir því hvort fólk þekki hana nú á götum úti svarar María Birta því játandi. „Fólk hefur stoppað mig úti á götu og hrósað mér, sem er bara gaman," segir María Birta að lokum. - sm
Mest lesið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Aubrey Plaza orðin mamma Lífið Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Sjá meira