Hera efnir til hnallþórukeppni á Eurovision-basar 31. mars 2010 03:00 Í eldhúsinu Hera Björk segist vera góð í að baka og ætlar meðal annars að mæta með kærleiksmöffins í Kringluna í dag.fréttablaðið/anton
Eurovision-hópurinn stendur fyrir fjáröflunarkökubasar í Kringlunni í dag. Hera ætlar að baka ýmislegt góðgæti og hvetur einnig landsmenn til að koma með kökur og styrkja gott málefni. „Ég er mjög góð í að baka enda mikill sælkeri. Ég verð líka svo matsár ef ég fæ vondar kökur og vondan mat. Þannig að ég legg mig alveg sérstaklega fram,“ segir Hera Björk, Eurovision-fari Íslendinga í ár. Hera og félagar ætla að efna til sérstaks fjáröflunarkökubasars í Kringlunni í dag. Eurovision-hópurinn leggur til kökur, en liðtækar húsmæður og -feður eru einnig hvött til að koma með uppáhaldskökuna eða -brauðið sitt á staðinn og styrkja ferðalagið til Noregs. Sjálf hófst Hera handa í eldhúsinu í gær. „Ég ætla að leggja til kærleiksmöffins. Það eru regnboga-hjartalagamöffins. Dásamlega fagrar,“ segir hún. „Svo ætla ég að blása til hnallþórukeppni. Þannig að ég ætla að baka einhverja rosalega hnallþóru.“ Mamma Heru tekur að sjálfsögðu þátt í bakstrinum og er þegar búin að selja eina köku. „Mamma er að baka hrísköku og appelsínuköku sem er búin að vera uppáhaldið mitt frá því að ég var lítil,“ segir Hera. „Frændi minn brjálaðist þegar hann heyrði þetta og er búinn að bjóða í eina strax. Hún má ekki seljast því hann ætlar að fá hana. Hann hefur ekki fengið svona köku frá því að hann fermdist og hann er rúmlega fertugur maður. Svo er ég búinn að frétta af kökum á leiðinni frá Hólmavík, sem er alveg æðislegt. Og það eru að koma kökur frá Selfossi og hugsanlega frá Egilsstöðum ef það fæst far undir þær.“ Ferðalagið til Noregs er mjög kostnaðarsamt, enda Noregur eitt það dýrasta í heimi. „Allir á RÚV eru að gera rosalega góða hluti og teygja sig eins langt og þeir geta,“ segir Hera. „En það er erfitt að fá styrktaraðila á þessum yndislegu tímum. Við þurfum smá hjálp og þá höfum við þetta opinbert og biðjum um hjálp.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Ed Sheeran sparkar Macklemore Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Fleiri fréttir Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Sjá meira