Helga og Bedi fái makleg málagjöld 12. nóvember 2010 06:30 Roger Davidson. Vickram Bedi stendur við hlið hans
Meint fórnarlamb svikamyllu Helgu Ingvarsdóttur og Vickrams Bedi segist hafa orðið fyrir barðinu á „margbrotnu ráðabruggi svikahrappa af verstu sort". Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hinn svikni sendi frá sér í gær. Hann hafði fram að því verið þögull og ekki látið fjölmiðla ná í sig. Fórnarlambið heitir Roger Davidson og er vellauðugur djasspíanisti og erfingi olíurisa. Hann mun hafa greitt parinu um 20 milljónir dollara á sex ára tímabili fyrir að vernda tónlist hans fyrir hondúrískum tölvuvírus og líf hans fyrir valdasjúkum pólskum prestum úr Opus Dei-reglunni. Parið er grunað um að hafa kokkað upp söguna til að féfletta Davidson en Bedi hefur þvertekið fyrir það og sagt Davidson ofsóknaróðan. Davidson segir í yfirlýsingu sinni að Bedi og Helga séu ekki hefðbundnir tölvuviðgerðarmenn, heldur hafi þau vingast náið við hann í því skyni að svíkja af honum stórfé. Hann kveðst vera samvinnuþýður við saksóknaraembættið í Westchester í von um að fólkið fái makleg málagjöld og hann endurheimti hugsanlega hluta fjárins. Að lokum biður Davidson um frið á erfiðum tímum. Helga og Bedi sitja í fangelsi ytra. Réttarhöld í málinu hefjast 2. desember.- sh
Mest lesið Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Innlent Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Innlent Þyrlan kölluð út á mesta forgangi Innlent Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Innlent Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Innlent Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Innlent Aðsetur ríkisstjórnarinnar logar eftir árásir næturinnar Erlent Vilja skylda samskiptaforrit til að skanna einkaskilaboð fólks Erlent Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Innlent Labubu bangsar ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla Innlent Fleiri fréttir „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Gleði og samvera í 60 plús leikfimi á Selfossi Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Syrgja fallið kornabarn og fyrsti þúsaldardýrlingurinn Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Kröftug mótmæli brjóti ekki gegn málfrelsi Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Þyrlan kölluð út á mesta forgangi Jákvæð gagnvart nýrri atvinnustefnu Frábær og vel heppnuð Ljósanótt Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Skoða að rifta fríverslunarsamningi við Ísrael Labubu bangsar ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla Fangageymslur fullar eftir erilsama nótt Aðgerðir vegna Gasa, málfrelsi á Íslandi og ný atvinnustefna Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Veltir fyrir sér hvort íslensk íþróttafélög verði af milljörðum Handtekinn undir áhrifum með tvö börn í bílnum Fjölmenn mótmæli og skortur á íslenskukunnáttu þrátt fyrir doktorsnám Ákærðir fyrir hópnauðgun gegn ólögráða stúlku Gullkistan opnuð á Vestfjörðum Sóttu slasaðan ökumann við Surtshelli Gríðarlegur fjöldi á mótmælunum Þjóð gegn þjóðarmorði Tæpir sextíu þúsund fermetrar í eigu ríkisins standa tómir Kennir íslensku en fær ekki ríkisborgararétt að óbreyttu Tvöföldun erlendra fanga á fimm árum: „Þetta er auðvitað gríðarlega hátt hlutfall“ Nöfn myrtra barna verða lesin upp í sjö klukkustundir Sjá meira