Skrifar hrylling í fæðingarorlofi 12. nóvember 2010 09:30 Nanna Kristín nýtir fæðingarorlofið í að skrifa handrit eftir bók Steinars Braga en það er kannski ekki fyrsta skáldverkið sem fólki dettur í hug að láta nýbakaðar mæður lesa.Fréttablaðið/Valli „
Ég skrifaði fyrsta uppkastið í sumar, þá kasólétt og maður er jú aldrei viðkvæmari en einmitt þá. En bókin fjallar líka um konur og maður er aldrei meiri kona en með nýfætt barn,“ segir Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona. Hún hefur skrifað uppkast að kvikmyndahandriti eftir bók Steinars Braga, Konur, sem hlaut einróma lof gagnrýnenda árið 2008. Bókin þótti líka dökk og næstum hryllileg og Nanna Kristín viðurkennir að það hafi tekið svolítið á að skrifa handritið. „Ætli ég komi ekki með þetta kvenlega „touch“ á þetta. Annars gaf Steinar Bragi mér ákveðið frjálsræði.“ Nanna Kristín er nú í fæðingarorlofi, sem er einmitt tíminn þegar flestar mæður svífa um á bleiku skýi yfir nýjasta fjölskyldumeðlimnum. Leikkonan hyggst hins vegar nýta sitt fæðingarorlof í að skrifa næsta uppkast að handritinu eftir þessari bók sem Páll Baldvin, þáverandi gagnrýnandi Fréttablaðsins, lýsti þannig að hún kæmi á endanum illa við sálartetrið og ekki síður líkamlega við lesendur. „Ottó Geir Borg ætlar að vinna þetta með mér og við gerum þetta í sameiningu, það er kominn styrkur frá Kvikmyndamiðstöðinni en ekki leikstjóri,“ segir Nanna Kristín en það er framleiðslufyrirtækið ZikZak sem á kvikmyndaréttinn að bókinni. Nanna Kristín hefur verið ein af fremstu leikkonum þjóðarinnar undanfarið og hún kveðst ekki alveg vera búin að leggja leikaraskóna á hilluna þótt hún einbeiti sér nú að skrifum. „Þegar maður er kasólétt leikkona eru hlutverkin ekkert á hverju strái. Og eftir kvikmyndirnar Börn og Foreldra langaði mig meira að skrifa og framleiða. Ég fékk bakteríuna endanlega þegar ég vann með Valdísi Óskarsdóttur að Sveitabrúðkaupi og Kóngavegi.“- fgg
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira