Eurovision-stemning í Sundhöll Reykjavíkur 21. apríl 2010 09:00 Sundhöll Reykjavíkur er sögusviðið í myndbandinu við Eurovision-slagarann Je ne sais quoi þar sem <B>Hera Björk</B> og Valdimar Örn Flygenring fara á kostum.
Sundhöll Reykjavíkur var undirlögð af kvikmyndagerðarfólki aðfaranótt sunnudags þegar nýtt myndband við Eurovision-slagarann Je ne sais quoi var tekið upp. Vera Sölvadóttir er leikstjóri nýja myndbandsins og myndbandið þykir nokkuð óhefðbundið af Eurovision að vera. „Það eru engir karlar að dansa í diskógalla, ef það er það sem þú ert meina,“ segir Vera í samtali við Fréttablaðið. Hún var þó ekkert sérstaklega bjartsýn á að þetta myndband fengist í gegn og það kom henni skemmtilega á óvart þegar fulltrúar lagsins samþykktu handritið sem hún hafði skrifað. „Ég bjóst ekkert við því,“ segir Vera. Leikstjórinn vill ekki gefa upp of mikið um efni myndbandsins sem verður frumsýnt í næstu viku ef allt gengur samkvæmt áætlun. Hátt í fimmtíu manns komu að gerð myndbandsins og eftir því sem Fréttablaðið kemst næst þá ríkir mikil litadýrð í myndbandinu. Vera segir alla hafa skemmt sér konunglega við gerð myndbandsins, ekki síst söngkonuna sjálfa, Heru Björk. En þegar gengið er á Veru og hún spurð út í atburðarásina í myndbandinu upplýsir hún að Hera verði ástfangin í myndbandinu. Og sá heppni er enginn annar en Valdimar Örn Flygenring, leikari með meiru. „Af hverju hann? Valdimar er bara mega-hönk og smellpassaði alveg inn í þetta hlutverk,“ segir Vera og bætir því við að leikarinn hafi brugðist snöggt við kallinu með mjög skömmum fyrirvara. „Hann reyndist tilbúinn til að fórna sér fyrir málstaðinn, sagði að þetta væri sitt framlag til íslenska lagsins.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Laufey á landinu Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira