Setja Faust upp í Young Vic 21. apríl 2010 05:00 Gísli Örn Garðarsson segir þetta vera eina af stóru stundunum í sögu Vesturports en samstarfssýning hópsins og Borgarleikhússins um Faust verður fjörutíu ára afmælissýning leikhússins Young Vic í London. David Lann, leikhússtjóri Young Vic, er feikilega ánægður með að hafa fengið sýninguna á þessum merkilegu tímamótum. „
Þetta er ein af stóru stundunum,“ segir Gísli Örn Garðarsson en uppfærsla Vesturports og Borgarleikhússins á hinni sígildu sögu um Faust verður fjörutíu ára afmælissýning leikhússins Young Vic í Lundúnum. Leikhúsið er eitt af þeim stóru á Englandi og því er um að ræða feikilegan heiður fyrir Vesturportsfólk. Við taka nú þrotlausar æfingar á verkinu á ensku og verður enskum tungumálakennara flogið til Íslands til að hafa yfirumsjón með tungumálaæfingunum. Sýningin verður á fjölum leikhússins í sex vikur og verður sýnt alla daga vikunnar, alls fjörutíu og tvær sýningar en frumsýnt verður 1. október. Þessi árangur Vesturports og Borgarleikhússins er ekki síst merkilegur í því ljósi að Young Vic-leikhúsið var stofnað sérstaklega til að gefa ungu listafólki á Bretlandseyjum tækifæri til að koma listsköpun sinni á framfæri og vera með það framsæknasta og frumlegasta sem í gangi er hverju sinni í bresku leikhúslífi. Meðal þeirra sem hafa stigið sín fyrstu skref á fjölum leikhússins eru stórleikarar á borð við Helen Mirren, Judi Dench, Jude Law, Ian McKellen og Clive Owen og þá má til gamans nefna að hin goðsagnakennda rokkgrúppa The Who hélt vikulega tónleika í húsinu til að æfa fyrir upptökur á meistarastykki sínu Who‘s Next. David Lan, leikhússtjóri Young Vic, var viðstaddur frumsýningu Faust hér á landi í janúar og heillaðist af verkinu. „Gísli og Vesturport hafa verið stór hluti af Young Vic undanfarin ár. Okkur þykir mikið til þeirra koma og finnst frábært að fá tækifæri til að vinna með þeim. Ekki skemmir heldur fyrir að áhorfendurnir okkar kunna vel að meta sýningarnar þeirra,“ segir Lan en Vesturport setti upp hina margrómuðu Rómeó og Júlíu í leikhúsinu fyrir átta árum sem vakti mikla athygli. „Við erum því himinlifandi að hafa fengið bæði Vesturport og Borgarleikhúsið til liðs við okkur og Faust verður miðpunkturinn á afmælisdagskránni okkar.“ Gísli segir að þegar menn haldi upp á svona stórafmæli vilji þeir vanda vel til verka. Því hvíli mikil ábyrgð á herðum leikhópsins sem stendur að Faust. „Það sem gerir þetta óvænt er að við erum íslensk og það er alveg sama hversu hart við leggjum að okkur í tungumálinu þá breytir það ekki þeirri staðreynd að við erum íslensk. Maður hefði kannski haldið að þeir myndu setja saman einhverja sýningu með meiri sögulegri skírskotun en þetta sýnir kannski best hversu mikill heiður þetta er fyrir okkur. Maður er bara eiginlega í skýjunum.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Fleiri fréttir Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Sjá meira