Dauðakippir rappsins? 17. febrúar 2010 02:00 Gullöldin og nútíminn Erpur og Bent árið 2003 og Emmsjé Gauti árið 2009.
Vopnaðar erjur Móra (Magnúsar Ómarssonar) og Blaz Roca (Erps Eyvindarsonar) hafa beint sjónum manna að íslenska rappinu. Er yfirleitt einhver íslensk rappsena til? Og hvar er hún þá? Gullöld íslenska rappsins var í byrjun aldarinnar. XXX Rottweiler hundar sigruðu Músíktilraunir árið 2000 og komu með fyrstu plötuna sína árið eftir. Erpur Eyvindarson naut vinsælda í sjónvarpinu sem Johnny National og bandið kom sterkt inn með hressandi kjafthætti. Platan seldist í hrönnum, fór á endanum í vel yfir tíu þúsund eintökum. Rapp var kúl og það var sérstaklega kúl að rappa á íslensku.GullæðiHálfgert gullæði gróf um sig: rappplötum var dælt út árið 2002. Það ár er einstakt í íslenskri útgáfusögu vegna fjölda rapptitla. XXX Rottweiler hömruðu járnið og komu með plötu númer tvö. Platan varð ekki sú vítamínsprauta sem fyrsta platan hafði verið. Nýliðar á borð við Afkvæmi guðanna, Bent & 7berg (úr Rottweiler), Kritikal Mazz og Bæjarins bestu stigu fram á rímnavöllinn, sem og Móri, sem tók glæpavinkilinn á rappið, til að mynda í laginu „Atvinnukrimmi“. Einnig komu út nokkrar safnplötur. Margar af þessum plötum komu út á vegum Eddu útgáfunnar og að sögn stóðu þær flestar undir sér. Þar munaði miklu um að BT kveikti á rapp-perunni, hlúði að senunni og sá markhóp í rappkaupendum. Gullöldin lifði ekki nema í eitt og hálft ár. Rappið kíkti aðeins upp á yfirborðið en hvarf svo aftur ofan í grasrótina. Kannski varð rappið þreytt vegna offramboðs, en einnig má benda á að senuna hefur alltaf vantað aðhlynningu frá stóru útvarpsstöðvunum. Þess vegna stofnaði Ómar Ómar net-útvarpsstöðina Ras3.is á dögunum, kannski ekki seinna vænna. Breyttir tímarÓmar gerði líka út vefsíðuna hiphop.is, sem varð eins konar heimahöfn íslenskra rappara. Síðan hefur nú verið niðri all lengi og því er rappsenan dreifð í dag, vantar sameiginlegan fókuspunkt. Menn eru að sýsla hver í sínu horninu. Það má þó búast við að einhver brennipunktur verði til í kringum Haförninn, nýjan þátt Dóra DNA á Rás 2. Einnig hefur hreinræktað hipphopp blandast öðrum stefnum. Plötusnúðar kenndir við hipphopp eru óhræddir við að spila annað og rapparar víla ekki fyrir sér að vera í elektró hljómsveitum, sem dæmi. Það er harður kjarni sem fylgist enn með og líklega um 500 manns sem eru virkir á senunni, mætir á tónleika og viðburði.Það eru breyttir tímar síðan á gullöldinni. Plötusala er ekki lengur upphaf og endir alls. Annað dreifikerfi er í gangi, fólk hlustar á músíkina beint af Netinu og margir gefa einungis út á Netinu. Margir vilja þó enn koma músíkinni í fast form. Fyrsta sólóplata Erps er væntanleg. Hann er hluti af „gamla genginu“ þótt hann sé reyndar ekki nema 33 ára. Diddi Fel, kenndur við Forgotten Lores, er líka „gamall“ í hettunni, 29 ára. Hann vinnur nú að fyrstu sólóplötunni sinni, Hesthúsið. Diddi heldur úti síðunni coxbutter.com með vinum sínum þar sem hægt er að hlaða niður íslensku rappi ókeypis.Menn eins og Poetrix, Ástþór Ómar, Ramses og Steve Sampling eru iðnir við kolann. Nýjustu kapparnir eru svo þeir Emmsjé Gauti og Dabbi T. Þeir voru saman í 32C, tríói sem stefndi að plötu en náði ekki því takmarki.Báðir eru ungir að árum og höfða til krakkanna. Og báðir safna nú í sarpinn og stefna að því að gefa út plötur. Þangað til má fylgjast með þeim á Netinu. Það er því nóg í gangi undir niðri, og aldrei að vita nema eitthvað kíki upp á yfirborðið. Jafnvel með látum. drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Britney farin í meðferð Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira