Lífið

Karl sigursæll í Hollywood

Karl Júlíusson vann til verðlauna hjá Art Directors Guild Awards á laugardagskvöldið. Hann var viðstaddur verðlaunaafhendinguna sem fór fram á Beverly Hills Hilton-hótelinu.
Karl Júlíusson vann til verðlauna hjá Art Directors Guild Awards á laugardagskvöldið. Hann var viðstaddur verðlaunaafhendinguna sem fór fram á Beverly Hills Hilton-hótelinu.

„Þetta kom nokkuð á óvart því myndin er gerð fyrir lítin pening. En það er gaman þegar menn taka eftir svoleiðis myndum,“ segir Karl Júlíusson, leikmyndahönnuður, en hann stóð uppi sem sigurvegari á Art Directors Guild Awards á laugardagskvöldið þegar leikmynd The Hurt Locker var valinn sú besta í nútímamyndaflokknum. Avatar fékk verðlaunin í flokki ævintýramynda og Sherlock Holmes-kvikmynd Guy Ritchie fyrir sögulega-flokkinn. Hátíðin var haldin á Beverly Hills Hilton-hótelinu og fékk gamla brýnið Warren Beatty sérstök heiðursverðlaun.

Karl var að vonum ánægður með verðlaunin þegar Fréttablaðið vakti hann í Hollywood. „Þetta er mikill heiður því þarna eru það samstarfsfélagarnir sem velja, fagfólkið í þessum bransa.“ Meðal kvikmynda sem urðu að lúta í lægra haldi fyrir leikmynd Karls voru leikmyndir Angels & Demons sem byggð er á samnefndri bók Dan Brown, The Hangover og The Lovely Bones sem Peter Jackson leikstýrir.

Karl var á leiðinni yfir til Mexíkó að gera leikmynd fyrir kvikmyndina Cartel sem leikstýrt er af danska leikstjóranum Asger Leth. Josh Brolin leikur aðalhlutverkið en sögusvið myndarinnar er hið miskunnarlausa eiturlyfjastríð sem haldið hefur íbúum stærstu borga Mexíkó í gíslingu. -fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.