Bestla gaut átta grísum Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. apríl 2010 15:45 Grísirnir eru þegar farnir að sýna sig fyrir gestum garðsins. Mynd/ Húsdýragarðurinn.
Dýrahirðar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum höfðu í nógu að snúast í fjósinu í morgunsárið. Gyltan Bestla gaut átta grísum upp úr klukkan sjö. Gotið gekk vel en nokkur tími leið á milli grísa sem Bestla notaði til að ná kröftum. Að sögn dýrahirða í garðinum tók gölturinn Gullinbursti, sem býr í næstu stíu, gotinu með mikilli yfirvegun og lét það hvorki trufla morgunlúrinn hjá sér né hádegislúrinn. Unnur Sigurþórsdóttir dýrahirðir segir að ekki sé búið að gefa grísunum nöfn. „Þetta er svona Babe eitt til átta enn sem komið er," segir Unnur. Unnur segir að grísirnir séu strax farnir að sýna sig fyrir gestum Húsdýragarðsins. „Þeir eru bara úti í fjósi núna," segir Unnur. Gyltunni er hleypt til þeirra reglulega til að gefa þeim að drekka en annars fær hún ekki að vera nálægt þeim vegnu hættu á að hún leggist ofan á þá. Dýrahirðar segja að næst sé von á fjölgun í fjárhúsinu enda séu ærnar orðnar miklar um sig. Unnur segir að búast megi við lömbum á tímabilinu 5. - 10 maí. Níu ær eru í garðinum og segir Unnur að þær ættu allar að vera lembdar.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Sjá meira