Gagnrýndu agaleysi í ríkisfjármálum 29. apríl 2010 12:21 Ásbjörn Óttarsson gagnrýndi ríkisstjórnina á þingfundi í dag. Það sama gerði Pétur Blöndal. Mynd/GVA
Sjálfstæðismenn gagnrýna ríkisstjórnina fyrir að veita aukalega 500 milljónum króna til atvinnusköpunar án þess að fyrir liggi samþykki Alþingis. Í stað aðhalds sýni ríkisstjórnin agaleysi í ríkisfjármálum. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, kynnti í síðustu viku þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hækka framlög til viðhaldsverkefna á opinberum byggingum um 500 milljónir króna - eða úr 2,7 milljörðum í 3,2. Talið er að verkefnin muni skapa um 200 ný ársverk. Sjálfstæðismenn gagnrýndu þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar á Alþingi í morgun á þeim forsendum að ekki hafi verið fjallað um þessa aukafjárveitingu á Alþingi. Ásbjörn Óttarsson, þingmaður sjálfstæðisflokks, sagði þetta skýrt dæmi um agaleysi ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum. „Ég teldi eðlilegra að svona atriði kæmi fyrir þingið í heild sinni, sem er fjárveitingarvaldið, og gæfi þá leyfi fyrir því að fara í þetta verkefni. Burt sé frá hvert verkefnið er." Undir þetta tók Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks. „Þetta er ekki bara brot á fjárlögum. Þetta er brot á stjórnarskrá."Siv Friðleifsdóttir sagði að allir flokkar væru sekir í málinu.Mynd/GVAGuðbjartur Hannesson, þingmaður samfylkingarinnar og formaður fjárlaganefndar, benti á að það væri engin nýlunda að áform væru kynnt með þessum hætti. „Mér finnst ekkert óeðlilegt þó að ríkisstjórnin komi fram með slík áform og leggi þau fram. Ég hef rætt það við fjármálaráðherra að það sé eðlilegt að þá fylgi sú setning að þetta sé háð því að málið fái afgreiðslu og samþykki Alþingis," sagði Guðbjartur. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, sagði að allir flokkar væru sekir í málinu og ekki bara hægt að gagnrýna núverandi ríkisstjórn. „Sjálfstæðisflokkurinn hefur stundað þetta. Framsóknarflokkurinn hefur stundað þetta. Samfylkingin hefur stundað þetta og núna Vinstri grænir," sagði Siv.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Sjá meira