Guðmundur dómari á World Beer Cup - yfir 3.000 bjórar dæmdir 20. maí 2010 16:00 Guðmundur Mar Magnússon er margverðlaunaður bruggmeistari Ölgerðarinnar en hefur nú staðið vakt dómara á heimsmeistaramóti bjórs í Chicago. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég þurfti sem betur fer ekki að smakka þá alla, en alls dæmdi ég bjórtegundir í níu af níutíu flokkum," segir Guðmundur Mar Magnússon, efnafræðingur og bruggmeistari hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Guðmundur er fyrstur Íslendinga kallaður til dómarastarfa á World Beer Cup, eða heimsmeistaramóti bjóra, sem nýlega var haldið í Chicago. Að þessu sinni voru metnir 3.330 bjórar frá 44 löndum, en keppt var í 90 flokkum. Aðeins þeim allra bestu sem öðlast hafa virðingu í faginu hlotnast sáheiður að taka sæti í dómnefndinni. „Ölgerðin hefur reglulega tekið þátt í heimsmeistaramótinu og unnið þartil verðlauna. Eftir síðustu keppni var leitað til mín um að dæma bestu bjóra veraldar, en áður þurfti ég að leggja fram meðmælendur og efnismat," segir Guðmundur sem sjálfur er margverðlaunaður bruggari. Hans þekktasta afurð er vafalaust Egils Gull sem hlaut silfurverðlaun á heimsmeistaramótinu 2008 og Egils Lite sem fékk gullverðlaun 2006. Nýjustu veigar hans, Polar Beer, hrepptu að þessu sinni bronsverðlaun í flokknum International Style Lager þar sem valið stóð á milli 58 bjórtegunda. „Bjór er endalaus flóra og möguleikarnir ótakmarkaðir. Í grunninn eru tvær tegundir sem fara eftir því hvort gerið flýtur upp í topp tanksins eða sest á botninn eftir gerjun. Þannig er öl með toppgeri en gerið sest til botns í lageröli. Undir þessum tveimur tegundum eru svo ótal undirflokkar og hægt að búa til endalausar útfærslur af bjór," segir Guðmundur og játar að starf bruggmeistarans sé bæði margþætt og flókið, en bruggmeistaramenntun sína hlaut hann í Danaveldi þar sem krafist er háskólaprófs í efnafræði eða efnaverkfræði. „Það felst mikil hugsun í því að brugga bjór og aðferðirnar geysiflóknar. Velja þarf saman hráefni sem kallar fram lit og bragð og þar sem enginn sykur finnst í bjór, annar en sá sem kemur úr maltkorni, þarf að vinna það á afar nákvæman hátt svo sykurinn nýtist til gerjunar," segir Guðmundur sem valdi sér efnafræði á háskólaárunum vegna áhuga á viðfangsefninu en sóttist síðar eftir bruggmeistaranámi eftir að hafa sinnt gæðaeftirliti hjá Ölgerðinni um tíma. „En ég hafði engan sérstakan áhuga á bjór fyrr en ég kom hingað og er nú orðinn mikill bjóráhugamaður sem að sjálfsögðu skemmir ekki fyrir. Í keppninni fer smökkunin þannig fram að við fáum ómerkt bjórsýni úr hverjum flokki og drekkum þau, en aldrei svo mikið að menn verði drukknir, þótt maður finni örlítið fyrir áhrifum. Galdurinn er að fara ekki yfir strikið, en bjór er dæmdur í þremur lotum þar til einn stendur eftir sem sigurvegari. Því er ekki hægt að benda á einhvern einn ákveðinn bjór sem besta bjór í heimi því sigurvegararnir koma úr öllum flokkum." Að sögn Guðmundar stendur íslenski bjórinn sig vel á heimsvísu en Íslendingar eru með þeim yngstu í faginu. „Fremstir í heiminum eru þó sennilega Þjóðverjar og svo Bandaríkjamenn, en þeir eru í fararbroddi í svokölluðu „micro brewery" sem nú fer sem bylgja um heiminn. Það eru í raun lítil brugghús og algeng á veitingastöðum sem vilja brugga sínar eigin bjórtegundir og afbrigði. Ölgerðin er þar enginn eftirbátur og í smábrugghúsinu Borg hafa bruggmeistarar nú einstaka aðstöðu til að vinna við frekari þróunar- og tilraunastarfsemi í bjórgerðinni." thordis@frettabladid.is
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira