Borgin ver 100 milljónum í markaðsátak fyrir ferðaþjónustuna Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. apríl 2010 13:58 Borgarráð ákvað að leggja 100 milljónir króna í markaðsátakið. Mynd/ GVA.
Borgarráð ákvað einróma á fundi sínum í morgun að verja 100 milljónum króna til sameiginlegs markaðsátaks í ferðaþjónustu með helstu hagsmunaaðilum í greininni vegna gossins í Eyjafjallajökli. Er þetta gert í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu, sem komin er upp hjá íslenskri ferðaþjónustu og hjá fjölmörgum fyrirtækjum í Reykjavík sem treysta á viðskipti erlendra ferðamanna. „Reykjavíkurborg brást hratt við og hafa Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar og Höfuðborgarstofa unnið náið með rekstraraðilum í ferðaþjónustunni. Með sameiginlegu markaðsátaki næst vonandi að sporna við fyrirséðum samdrætti þannig að tjónið á núverandi ferðatímabili verði lágmarkað," segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri. Í fréttatilkynningu frá Reykjavikurborg segir að vegna öskufalls frá gosinu í Eyjafjallajökli og mikilla hindrana í flugsamgöngum sé komin upp afar alvarleg staða í íslenskri ferðaþjónustu. Miklar afbókanir hafa verið á flugsætum, gistingu, bílaleigubílum og annarri ferðaþjónustu. Nýting á hótelum í Reykjavík sé um þessar mundir allt niður í helming þess sem var á sama tíma í fyrra og ráðstefnur og komur skipulagðra hópa hafa fallið niður eða verið afbókaðar samkvæmt upplýsingum frá Samtökum ferðaþjónustunnar. Ríkisstjórnin hefur þegar ákveðið að verja 350 milljónum króna í markaðsátak fyrir ferðaþjónustuna.
Mest lesið Bandaríkin beittu neitunarvaldinu gegn kröfu um vopnahlé Erlent Raunvirði íbúða lækkar á ný Innlent „Hver ætlar að fylgjast með því að hann komi ekki til baka?“ Innlent Mótmælir breyttu fyrirkomulagi í nemendaráðskosningum Innlent Grunaður um að fara inn á heimili fjölskyldu og brjóta þar á barni Innlent Hundruð milljóna vanti: „Þetta er hreint misrétti“ Innlent Ók á vegavinnumann og flúði vettvang Innlent Kimmel tekinn af dagskrá: Donald Trump grafi undan lýðræðinu Innlent Vítamínmarkaðurinn á Íslandi eins og villta vestrið Innlent Gekk fram á dauða seli: „Svona á enginn að gera“ Innlent Fleiri fréttir Raunvirði íbúða lækkar á ný Mótmælir breyttu fyrirkomulagi í nemendaráðskosningum Grunaður um að fara inn á heimili fjölskyldu og brjóta þar á barni Ók á vegavinnumann og flúði vettvang Biðla til fólks að taka vel á móti sölumönnum þó svikahrappar séu á ferð Kimmel tekinn af dagskrá: Donald Trump grafi undan lýðræðinu Bókun 35 fór hnökralaust í gegnum fyrstu umræðu en gæti reynt á í næstu Hundruð milljóna vanti: „Þetta er hreint misrétti“ „Hver ætlar að fylgjast með því að hann komi ekki til baka?“ Vítamínmarkaðurinn á Íslandi eins og villta vestrið Tjáir sig um brottvísun Kourani og tekist á um Jimmy Kimmel Tóku fyrstu skóflustungu að næsta áfanga miðbæjarins á Selfossi „Ýtnir og frekir“ útlendingar þykjist heyrnarlausir til að svíkja af fólki fé BSRB fordæmir áform ríkisstjórnar um að skerða réttindi starfsfólks Piltur stakk mann ítrekað en var sýknaður af tilraun til manndráps Hafnir landsins þurfa hátt í hundrað milljarða næstu fimmtán árin Harma áform stjórnvalda sem heimila hækkun gjalda Innan við helmingur segist trúaður Guðjón Ragnar skipaður skólameistari „Ég er bara eins og ég er og tala bara eins og ég tala“ Inga á móti neitunarvaldi sveitarfélaga „Ævintýralegur ávinningur“ og ráðherra segir auðvelt að sækja um Kjósa um sameiningu sveitarfélaganna í lok nóvember og desember Gísli Marteinn „alls ekki“ á leið í framboð Vilja að átján ára fái að kaupa áfengi Ráðherra boðar stórtækar breytingar og Viðskiptaráð vill finna olíu Hafnar kröfu um ógildingu ákvörðunar Skipulagsstofnunar Svona gæti Sundabraut litið út: Brú eða göng meðal valkosta Stefnir í að forystan verði óbreytt Gekk fram á dauða seli: „Svona á enginn að gera“ Sjá meira