Meðferð lánamála flýtt í Hæstarétti 29. apríl 2010 06:00 Hæstiréttur Dómum Héraðsdóms Reykjavíkur í tveim málum er varða myntkörfulán var skotið til Hæstaréttar en niðurstaða héraðsdóm þykir hafa skapað mikla réttaróvissu. Fréttablaðið/gva
Hæstiréttur hefur ákveðið að flýta meðferð tveggja mála er varða lögmæti myntkörfulána. Komist Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að lánin séu ólögleg, eins og Héraðsdómur Reykjavíkur komst að í öðru málanna, þýðir það ekki að hagur allra neytenda vænkist eða að allri óvissu um lánin sé þar með eytt. Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri Hæstaréttar, segir að ákvörðun um flýtimeðferð hafi verið tekin þar innanhúss í samráði við lögmenn beggja málanna án þess að til hafi komið formlegt erindi. Bæði málin, sem séu að öllu leyti aðskilin, verði tekin fyrir 2. júní og dómar verði kveðnir upp samtímis, í allra síðasta lagi 21. júní, en þá verður gert réttarhlé. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, fagnar því aðspurður að málin séu tekin fyrir um sex mánuðum fyrr en annars hefði verið. „Taki rétturinn efnislega afstöðu, sem ég vona, en vísi þessu ekki frá þá verður væntanlega búið að skera úr um hvort þessi tegund myntkörfulána sé lögmæt eða ekki. Ég tel að ef svo ólíklega fari að Hæstiréttur komist að þeirri niðurstöðu að gengislánin séu lögmæt þá á eftir að taka tillit til annarra álitamála tengdum þeim.“ Líklegt sé að neytendur geti í mörgum tilvikum borið skaðabótasjónarmið, forsendubrest og fleiri lagaröksemdir fyrir sig gegn kröfuhöfum sínum. Með öðrum orðum telur Gísli að niðurstaða Hæstaréttar í málunum tveimur svari ekki nema hluta þeirra álitamála sem uppi eru. Mismunandi skilmálar séu á milli lána og þá hvort þau voru í raun erlend lán eða venjuleg lán bundin gengi erlendra gjaldmiðla. „Sem er ólögmætt að mínu mati,“ segir Gísli. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sagði á Alþingi nýlega að ekki væri hægt að ganga að því vísu að dómur um ólögmæti myntkörfulána myndi létta skuldavanda heimila sem greiða af slíkum lánum. Þvert á móti gætu þeir sem tóku myntkörfulán til íbúðakaupa verið í verri stöðu. Ein niðurstaðan gæti orðið sú, eftir að lán hefðu verið uppreiknuð samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu, að hópur fólks gæti verið verr staddur en með þau úrræði sem boðið hefur verið upp á af bönkum og stjórnvöldum. Óljósara væri hins vegar hvað slík niðurstaða myndi þýða með skammtímalán eins og bílalán. svavar@frettabladid.is Gylfi Magnússon
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Innlent Fleiri fréttir Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Sjá meira