Frægt blaðaviðtal sett á svið 9. apríl 2010 06:00 Auður Jónsdóttir leikstýrir verkinu Nei Dorrit! og fara Snorri Ásmundsson, Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Davíð Þór Jónsson með aðalhlutverkin. Fréttablaðið/Stefán
Frægt viðtal við íslensku forsetahjónin úr tímaritinu Condé Nast er efniviður nýrrar leiksýningar í Iðnó. Barnabarn nóbelsskáldsins Halldórs Laxness leikstýrir verkinu. Leikritið Nei Dorrit! verður frumsýnt í Iðnó mánudaginn 12. apríl, en aðeins er um eina sýningu að ræða. Verkið er byggt á viðtalinu fræga sem blaðamaðurinn Joshua Hammer tók við forsetahjónin fyrir tímaritið Condé Nast og leikstýrir rithöfundurinn Auður Jónsdóttir verkinu. Þetta er í fyrsta sinn sem Auður sest í leikstjórastólinn, en hún segir hugmyndina að leikritinu hafa kviknað yfir kaffibolla á Hótel Holti. „Við erum nokkur sem hittumst alltaf í listamannakaffi á Hótel Holti og spjöllum um daginn og veginn og eitt umræðuefnið var meðal annars þetta viðtal. Okkur fannst það bæði skemmtilegt og sorglegt á sama tíma og ákváðum að setja upp heilt leikrit í kringum það. Orð forsetahjónanna virðast eitthvað svo ankannaleg núna tvemur árum eftir að viðtalið var tekið og viðhorf þeirra heldur naív,“ útskýrir Auður. Með hlutverk forsetahjónanna fara myndlistarmennirnir Snorri Ásmundsson og Ásdís Sif Gunnarsdóttir, tónlistarmaðurinn Davíð Þór Jónsson fer svo með hlutverk blaðamannsins Joshua Hammer. Aðspurð segist Auður ekki útiloka að fleiri leikrit verði sett á svið gangi þessi uppsetning vel. „Þá væri gaman að fara í gagnagrunnana hjá dagblöðunum og ná í fleiri „leikrit“ og setja þau upp, eins og Sjóvár-málið kannski. Maður verður bara að finna bitastæðustu viðtölin,“ segir Auður og hlær. Sýningin hefst klukkan 20.30 í Iðnó og er miðaverð 1.000 krónur. sara@frettabladid.is
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Fleiri fréttir Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Sjá meira