Lífið

Aftur til upphafsins

Níunda útgáfan í Bootleg-röð Bobs Dylan veldur ekki vonbrigðum.
Níunda útgáfan í Bootleg-röð Bobs Dylan veldur ekki vonbrigðum.
Útgáfuröðin Bootleg Series sem er helguð sjaldheyrðum upptökum frá ferli Bobs Dylan er einstök í tónlistarútgáfusögunni. Það hafa auðvitað komið út flottir pakkar með fágætu efni annarra listamanna, en það sem gerir Bootleg-röð Dylans sérstaka er sú staðreynd að þrátt fyrir magnið (15 diskar komnir) fara gæðin ekkert minnkandi.

Í síðustu viku kom níundi hlutinn í verslanir – The Witmark Demos: 1962-1964. Þetta eru 47 lög á tveimur diskum og eins og nafnið gefur til kynna eru þetta demó-upptökur sem Dylan gerði fyrir þá tvo aðila sem hann gerði fyrst samning við um útgáfurétt á lögunum sínum. Fyrstu lögin eru tekin upp í janúar 1962 fyrir Lou Levy hjá Leeds Music, en meginhluti efnisins er hljóðritaður fyrir M Witmark & Sons á árunum 1962-1964. Dylan er þarna einn með kassagítarinn og munnhörpuna og tekur aðeins í píanó líka. Þarna eru mörg fræg Dylan-lög (Blowin‘ in the Wind, A Hard Rain’s a-Gonna Fall, Masters of War, Don‘t Think Twice…), en líka lög sem aldrei náðu á plötu og voru jafnvel aldrei spiluð á tónleikum. Hljómurinn er góður og andrúmsloftið afslappað. Dylan hóstar, stoppar af því hann man ekki textann og kynnir stöku lög.

The Witmark Demos er enn eitt púslið í heildarmyndina fyrir aðdáendur Dylans. Ómetanlegt er að heyra þetta efni. Að auki fylgir 60 síðna bók með. Í henni eru meðal annars myndir og handskrifaðir og vélritaðir textar frá þessum tíma. Aðalefnið er samt texti eftir Colin Escott sem rekur sögu þessara hljóðritana og varpar ljósi bæði á feril Dylans og það ástand sem ríkti á þessum árum í bandarískri plötu­útgáfu. Blautur draumur poppnördsins ...





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.